21. febrúar 2012

Leiðin á leikana

IMG_0735

Mangó marineraður kjúklingur með kókos og makademíuhnetuhjúp, ávaxtachutney og shiraz salat

Þetta er rétturinn minn á Saffran. Hann er gómsætur, hollur og gefur manni orku til að takast á við daginn. 

Daginn sem ég byrjaði undirbúning minn fyrir Ólympíuleikana 2012 var daginn eftir að keppti á Ólympíuleikunum 2008. Ég stóð og horfði á sundhöllina í Peking og hugsaði með mér, fjögur ár í leikana í London. Ég var ánægð með árangurinn minn í Peking miðað við undirbúninginn fyrir þá leika. Ég hugsaði samt mikið um það hvað það gæti verið gaman að taka þátt í svona stórum íþróttaviðburði og ná árangri sem ekki bara ég gæti verið stolt af heldur öll þjóðin líka.

Ég horfði á strákana okkar taka við glansandi silfurpening og þegar gull-vonbrigðin voru yfirstaðin (sem tók kannski 2 mínútur) þá horfði maður á gleðina og tók þátt í þessum ótrúlegu stundum sem maður gleymir aldrei.  Ég tók ákvörðun um að æfa betur og undirbúa mig á aðeins öðruvísi hátt fyrir næstu leika. Það sem ég hafði gert fram að leikunum í Peking skilaði mér góðum árangri en með aðeins öðrum hætti gæti ég ef til vill náð frábærum árangri í London.

SUND-9407

Ég er búin að æfa vel og undirbúningurinn gengur vel. Það kom tímabil þar sem erfitt var að æfa og lifa. Ég er með góða styrktaraðila sem styðja við bakið á mér og gæti þetta aldrei án þeirra. Það kostar svita, blóð, tár og peninga að ætla sér langt. Á þessu erfiða tímabili þótti mér erfitt að kyngja stoltinu og þurfa að biðja foreldra mína um peninga fyrir bensíni. 27 ára gömul, bý hjá mömmu og pabba, alls ekki löt og samt sem áður hef ekki efni á því að fara í bíó eða kaupa mér buxur. 

Ég komst yfir þetta leiðindar tímabil og er komin á þann stað í undirbúningnum að ég sé bara markmiðið og hver einasti dagur kemur mér nær því. Meðal góðra styrktaraðila minna er Saffran. Saffran að styrkja mig og nokkra frábæra íþróttamenn og konur fyrir leikana. Það er ekki slæmt að geta fengið sér hollan og góðan mat á Saffran á tímum sem þessum þar sem allt sem ég geri er að æfa, sofa og borða.

SUND-9542

Réttuirnn minn á Saffran verður í boði í rúma viku í viðbót. 100 krónur af hverjum seldum rétt fer í styrk til mín, til að hjálpa mér á leið minni að leikunum. Ég vil þakka öllum fyrir sem hafa 'like-að' síðuna og farið á Saffran og fengið sér þennan frábæra og holla rétt. 

http://leidin.saffran.is/ragnheidur/

Ragga Ragnars

Ragga Ragnars Ragnheiður er ein fremsta sundkona okkar Íslendinga. Hún hefur tvisvar keppt á Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd og stefnir á næstu leika sem verða í London árið 2012. Ragga, einsog flestir kalla hana, er einnig fatahönnuður, fyrirsæta og förðunarfræðingur. Ragga hannar föt með ömmu sinni undir merkinu M-Design. Ragga er þekkt fyrir að vera góð fyrirmynd í íþrótt sinni og hugsar vel um heilsuna. Meira