Vöfflur eru ævafornar. Hægt er að finna vöfflujárn frá miðöldum víða um Evrópu. Flest þeirra voru í fórum kirkjunnar og notuð til að búa til oblátur. Það var þó ekki fyrr en á fimmtánduu öld að uppskriftir sem við myndum þekkja sem hefðbundnar vöffluuppskriftir fóru að berast á milli manna og er sú fyrsta frá París. Hefðin breiddist um Evrópu og skaut dýpstum rótum í Belgíu. Flest vöfflujárn sem við erigum í okkar skúffum skarta munstri sem var hannað í Belgíu á sautjándtu öld.
Vöfflur þekkjum við helst sem sætan kaffirétt og erum vön að bera fram með rjóma og sultu. En það er hægt að snúa við blaðinu og gera annars konar vöfflur. Og þessi uppskrift er talsvert frábrugðin þeim sem við eigum að venjast. Hvað sem því líður eru þetta sérlega gómsætar vöfflur, kjörnar sem hádeigisverður á ljúfum helgardegi.
Þetta er uppskrift sem birtist í bókinni minni sem kom út fyrir jólin. Endilega prófið þessa ljúffengu uppskrift!
Ósætar vöfflur með cheddar osti og serranoskinku
Fyrir 12-15 vöfflur
Fyrir vöfflurnar
2 bollar hveiti
2 egg
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
1 3/4 bollar mjólk
hvítlauksolía til penslunar
Fyrir hverja vöfflur
Rifinn ostur að eigin vali (t.d. cheddar)
1 sneið rifin hráskinka (serrano eða parma)
1 tsk hvítlauksolía
steinselja til skreytingar
1. Blandið þurrefnunum í skál og svo eggjum og mjólk saman við.
2. Hitið vöfflujárnið og penslið með hvítlauksolíu
3. Setjið skammt af deigi fyrir eina vöfflu í aðra skál og blandið saman við hluta af skinkunni og ostinum og bakið í vöfflujárninu.
4. Færið vöffluna upp í disk þegar hún er fallega gullin og skreytið með meira af skinku, osti, hvítlauksolíu og örlitlu af ferskri steinselju.
Veislan heldur áfram!