c

Pistlar:

9. ágúst 2014 kl. 12:12

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Ísland - best í heimi?

Einhverra hluta vegna þykir mörgum gaman að raða öllu mögulegu og ómögulegu upp flokka og raðir. Um þetta hefur skapast talsverð iðja hjá mörgum og ein angi þeirrar iðju gengur út á að raða þjóðlöndum í hópa. Væntanlega til fróðleiks og skemmtunar og jafnvel sumum til hvatningar. Oft ratar það í fréttir hvar Ísland stendur í þessum samanburði þó vissulega megi gera athugasemdir við aðferðafræði og áreiðanleika slíkra samantekta. Oftast nær virðist Ísland koma vel út í slíkum samanburðir og deilir þar velgengni með hinum norðurlöndunum. Norræna módelið virðist njóta tiltrúar þegar kemur að mannréttindum og velferð íbúa. Annað mengi sem einnig gengur vel - og við erum hluti af - er Norður-Evrópa. Þær þjóðir virðast næst á eftir Norðurlandaþjóðunum og stela stundum sætum af þeim. Í einum málaflokki virðist Ísland standa sig einstaklega vel en það er í jafnréttismálum.

Við skulum líta á nokkur dæmi um stöðu Íslands sem eru sett hér fram til fróðleiks og gamans. Sem gefur að skilja er þetta ekki tæmandi úttekt en hún gefur að mestu röðun Íslands eins og hún er í dag og er hér stuðst við upplýsingar sem hafa birst í íslenskum fjölmiðlum undanfarin misseri: 

  • Ef við byrjum á því hvar best er að búa í heiminum. Þar er Ísland í 3. sæti en Norðurlöndin raða sér í 10 efstu sætin. Um er að ræða svokallaðan Social Progress Index sem settur er saman af teymi hagfræðinga undir stjórn Michael Porter, prófessors í hagfræði við Harvard háskóla. Við uppröðun á listann er horft framhjá hefðbundnum mælikvörðum hagfræðinnar á borð við hagvöxt og þess í stað litið til lífsgæða og tækifæra til velgengni. Styðst listinn við opinber gögn frá alþjóðastofnunum og er meðal annars litið til heilsufars, mannréttinda og menntunar, auk annarra þátta. Listinn var fyrst settur saman í fyrra og samanstóð af 50 ríkjum, en hann hefur nú verið útvíkkaður og telur nú 132 ríki. Frá þessu var greint í mars 2014. 
  • Ísland er sautjánda besta land í heimi ef miðað er við hve mikið Íslendingar hafa lagt af mörkum til framþróunar mannkyns og jarðar. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem birt var í júní 2014 en hún nýtir 35 ólíkar mælingar frá Alþjóðabankanum, Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðlegum stofnunum til að raða löndum heims upp í lista. Þetta eru niðurstöðvar rannsóknar sem Simon Anholt, ráðgjafi í stefnumótun og hugmyndasmiður á bakvið vísitölu góðra landa, hefur unnið. Anholt hefur komið hingað til lands og haldið erindi á ársfundi Viðskiptaráðs og verður að segjast eins og er að aðferðafræði hans er umdeild. Að sögn Anholts er ætlunin að breyta því hvernig lönd stunda viðskipti með því að hvetja fólk til að hugsa um hnattrænar afleiðingar gjörða sinna frekar en eiginhagsmuni. Mælingum var raðað í sjö flokka og var staða Íslands í þeim mjög mismunandi. Ísland var til að mynda í fyrsta sæti í flokknum „Pláneta og loftslag", en í 101. sæti í flokknum „Velmegun og jafnrétti" er þar var til dæmis tekið tillit til mælinga á fjárhæð þróunaraðstoðar, þess hve opið hagkerfið er og þess hve mikið Íslendingar fjárfesta erlendis. Um þetta má fræðast nánar hér.
  • Ísland mælist friðsælasta land í heimi, þriðja skiptið í röð, í samantekt Hagfræði- og friðarstofnunarinnar (Institute for Economics and Peace) sem birt var í í júní 2014. Í könnuninni kom jafnframt fram að heimurinn hefur orðið talsvert hættulegri á hverju ári síðan 2008. Í samantektinni er meðal annars litið til þess að á Íslandi er tiltölulega lág tíðni morða og ofbeldisglæpa, lítill hluti þjóðarinnar er fangelsaður og aðgengi að vopnum er ekki gott. Frændur okkar Danir eru í öðru sæti listans en fjögur af fimm efstu löndunum eru í Evrópu. Neðsta sæti listans af 162 skipar Sýrland en þar stendur enn yfir borgarastyrjöld sem kostað hefur á annað hundrað þúsund manns lífið. 
  • The Economist Intelligence Unit birti í júní 2014 lista yfir stöðu lýðræðis í ríkjum heimsins og er Ísland í þriðja sæti listans með 9,65 stig af 10 mögulegum. Noregur er í efsta sæti með 9,93 stig, Svíþjóð í öðru sæti með 9,73 stig og Danmörk í fjórða sæti með 9,38 stig. Til að meta stöðu lýðræðisins er byggt á 60 spurningum í fimm flokkum en þeir eru framkvæmd kosninga, þátttaka í stjórnmálum, stjórnmálalíf, stjórnarhættir ríkisstjórnarinnar og almenn mannréttindi. Sumar spurningar vega meira en aðrar í matinu. Meðal þeirra mikilvægustu eru: Eru kosningar frjálsar og heiðarlegar? Eru kjósendur öruggir þegar þeir fara á kjörstað? Hafa erlend ríki vald yfir ríkisstjórninni? Geta opinberir starfsmenn framfylgt opinberum stefnum?
  • Evrópusamtök hinsegin fólks (ILGA- Europe), birtu nýlega úttekt á stöðu og réttindum hinsegin fólks í Evrópu. Samkvæmt úttektinni hlýtur Ísland 64 stig af 100 möguleikum og er í níunda sæti í Evrópu, á pari við Svíþjóð og Frakkland. Réttarstaða hinsegin fólks á Íslandi hefur tekið framförum frá síðustu mælingu en þá hlaut Ísland 56 stig og var í tíunda sæti. Staða hinsegin fólks í Evrópu er mjög misjöfn og fær Bretland hæstu einkunnina, 82 en Rússland fær sex stig. Þessar upplýsingar eru frá því í maí 2014.
  • Atvinnuþátttaka kvenna er mest á Íslandi og berum við af í alþjóðlegum samanburði að því er kemur fram í samantekt Samtaka atvinnulífsins sem greint var frá í maí 2014. Þannig er atvinnuþátttaka kvenna 40% meiri hér á landi en að meðaltali á evrusvæðinu. Mikil atvinnuþátttaka kvenna stendur undir góðum lífskjörum þjóðarinnar, um það þarf varla að deila. Ef atvinnuþátttaka kvenna væri sambærileg við það sem gerist á evru­svæðinu væri landsframleiðsla Íslands 15-20% minni og lífskjör þar af leiðandi verri. 
  • Ísland er í fyrsta sæti þegar mat er lagt á jafnrétti kynja í úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) sem tekur til 136 landa. Matið byggist á þáttum eins og stjórnmálaþátttöku, þátttöku í atvinnulífinu og efnahaglegum jöfnuði og tækifærum til þess að njóta menntunar og heilbrigðisþjónustu. Næst á eftir Íslandi koma Finnland, Noregur og Svíþjóð. Í niðurstöðum úttektarinnar segir að Norðurlandaþjóðirnar fjórar sem raða sér í efstu sætin hafi náð að brúa um 81%-87% af því bili sem mismunar kynjunum. Að meðaltali er mismunun kynja minnst hjá löndunum sem úttektin tekur til þegar mat er lagt á þætti sem snúa að heilsufari en mest þegar litið er til stjórnmálaþátttöku. Þessar upplýsingar eru frá því í október 2013.
  • Samkvæmt úttekt bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes eru Íslendingar í 9. sæti á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims. Fram kemur í greininni að lág íbúðatala geti útskýrt hvers vegna landið var í fyrsta sæti fyrir þá sem töldu sig geta reitt sig á stuðning vina og nágranna. Frá þessu var greint í júní 2014.
  • Ísland er í 5. sæti fyrir lönd með heilbrigðustu lífsgæði samkvæmt sömu úttekt Forbes.
  • Ísland er í fyrsta sæti af 72 ríkjum samkvæmt svokallaðri umhverfis- og kynjavísitölu (Environment and Gender Index) sem kynnt var á 19. aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Varsjá. Með vísitölunni er lagt mat á frammistöðu ríkja varðandi stöðu kvenna og kynjasamþættingu í stefnumótun í umhverfismálum. Holland er í öðru sæti listans og Noregur í því þriðja en Kongó í því neðsta. Þetta er í fyrsta sinn sem listinn er gefinn út en að baki honum er Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN - International Union for Conservation of Nature and Natural Resources). Frá þessu var greint í nóvember 2013 eins og sjá má hér.
  • Ísland er í 6. sæti yfir frelsi fjölmiðla í heiminum samkvæmt Freedom House eins og greint var frá í maí 2014.
  • Ísland er í fyrsta sæti yfir hlutfall starfa við rannsóknir. Eurostat, tölfræðistofnun ESB, hefur birt rannsókn á hlutfalli þeirra sem starfa við rannsóknir í aðildarríkjum ESB, en einnig eru skoðuð nokkur fleiri ríki, svo sem Ísland, Noregur, Tyrkland, Rússland og Japan. Niðurstaðan er sú að hlutfallið er hæst á Íslandi, 2,24% af öllu starfandi fólki á íslenskum vinnumarkaði starfa við rannsóknir. Næst hæst er hlutfallið í Finnlandi, 2,09%. Meðaltalið innan EES er 0,86%. Ef einungis er skoðaður einkageirinn er Ísland í þriðja sæti, með 0,81%, en Finnland í efsta sæti með 1,13% og Lúxemborg í öðru sæti með 0,86%. Meðalatalið innan EES er 0,35%, ef eingöngu er horft til einkageirans.
  • Ísland í þriðja sæti í evrópskri rannsókn á árangri af heilbrigðisstefnu. Í samanburðarrannsókn þessari á árangri af heilbrigðisstefnu 43 Evrópuríkja sem greint var frá í apríl 2013 lenti Ísland í þriðja efsta sæti. Fjallað er um rannsóknina í grein sem birtist í European Journal of Public Health, tímariti evrópsku lýðheilsusamtakanna EUPHA. Í rannsókninni var borin saman stefna ríkjanna á tíu mismunandi sviðum, þ.e. varðandi tóbaksvarnir, áfengisvarnir, matvæli og næringu, frjósemi, meðgöngu og fæðingar, heilsufar barna, smitsjúkdóma, greiningu og meðferð háþrýstings, skimun fyrir krabbameinum, umferðaröryggi og loftmengun. Einnig voru rannsakaðir stjórnmálalegir, efnahagslegir og félagslegir áhrifaþættir heilbrigðisstefnu ríkjanna. Til að meta frammistöðu ríkjanna voru þróaðir 27 mælikvarðar um ferli og árangur á þessum sviðum og voru þessir mælikvarðar síðan skoðaðir með hliðsjón af sex bakgrunnsþáttum, þ.á m. vergum þjóðartekjum, skilvirkni stjórnsýslu og pólitísku landslagi í ríkjunum. Þau gögn sem voru notuð í rannsókninni eru frá árinu 2008 eða sem næst því ári. 
  • Íslendingar eru í öðru sæti hamingjusömustu þjóða Evrópu, á eftir Dönum. Þetta kom fram á Evrópuráðstefnu um jákvæða sálfræði sem haldin var í Amsterdam í júlí 2014. Um er að ræða nýjar tölur úr rannsókninni European Social Survey 2012-2013 sem sýndi að hamingjustig Íslendinga hefði aftur náð yfir 8 á skalanum 0-10.
  • Árið 2012 var ungbarnadauði á Íslandi 1,1 af 1.000 lifandi fæddum samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn lágur og hér árið 2012. Næstir Íslandi komu Slóvenar en þar var ungbarnadauði 1,6 af 1.000 lifandi fæddum. Annars staðar á Norðurlöndum var ungbarnadauði á bilinu 2,4-3,4. Heildarmeðaltal Evrópusambandsríkja ásamt EES þjóðum var 3,8 fyrir árið 2012. 
  • Íslenskir karlar eru langlífastir í Evrópu 2012 samkvæmt samantekt Hagstofunnar sem birtist í júlí 2014. Þar kemur fram að lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mjög á undanförnum árum. Frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd. Árið 2012 var meðalævilengd íslenskra karla 81,6 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið meðal Evrópuþjóða það ár. Næst lengst geta karlar búist við að lifa að jafnaði við fæðingu í Sviss (80,6) og Svíþjóð (79,9). Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Litháen (68,4), Lettlandi (68,9) og Búlgaríu (70,9 ár).
  • Íslenskar konur í sjötta sæti samkvæmt sömu samantekt. Lengi vel voru lífslíkur íslenskra kvenna hæstar í heiminum en þær hafa dregist nokkuð afturúr stallsystrum sínum í Evrópu á þessari öld. Ástæðan fyrir því er hraðari aukning ævilengdar í nokkrum Evrópulöndum. Árið 2012 var meðalævilengd íslenskra kvenna 84,3 ár og skipuðu þær sjötta sætið meðal Evrópuþjóða. Elstar evrópskra kvenna verða konur á Spáni (85,5 ár), Frakklandi (85,4 ár) og Liechtenstein (85,2 ár). Meðalævilend evrópskra kvenna er styst í Makedóníu (76,9 ár), Serbíu (77,5 ár) og Búlgaríu (77,9 ár).
  • Ísland er í áttunda sæti yfir stöðugustu ríki heims samkvæmt listanum Fragile States Index fyrir árið 2014 en frá því var greint í júlí síðastliðnum. Listinn, sem birtur hefur verið tíu sinnum, gefur ákveðna mynd af því hversu brothætt eða stöðug ríki heimsins eru. Listinn byggir á mörg þúsund greinum og skýrslum um ríkin 178. Ríkjunum eru gefnar einkunnir í nokkrum flokkum, svosem fátækt, mannréttindi, lögmæti stjórnvalda, utanaðankomandi afskipti og fleira. Brothættustu ríkin samkvæmt listanum eru Suður-Súdan, Sómalía, Mið-Afríkulýðveldið, Kongó og Súdan. Finnland er hins vegar stöðugasta ríkið. Hin Norðurlöndin; Svíþjóð, Danmörk og Noregur koma þar á eftir og virðast heldur stöðugari en Ísland. Hugsanlega eru það eftirköst Búsáhaldabyltingarinnar sem valda því. 
Sem gefur að skilja vantar hér margvíslegan samanburð - sérstaklega á sviði efnahagslegrar frammistöðu - enda ekki um tæmandi samantekt að ræða. Það bíður betri tíma. 
 
Það skal tekið fram að þau viðhorf sem birtast í þessum pistli eru eingöngu höfundar og á hans ábyrgð.