c

Pistlar:

1. júlí 2016 kl. 13:47

Guðrún Kristjánsdóttir (systir.blog.is)

Ilmkjarnaolíur sem ættu að prýða hvert heimili!

Það er margsannað, jafnvel vísindalega, að góðar ilmkjarnaolíur geta haft djúp áhrif á líðan okkur. Að mati margra sem hafa áhuga á heilsu og jóga ætti hvert einasta nútímaheimili að búa yfir nokkrum tegundum ilmkjarnaolía. Þær eru lavender, piparmintuolía, frankincense, júkalyptusolía, ylang ylang, vetiver, nerolí, sandalviður, sítrónuolía, citronelluolía og síðast en ekki síst tea tree-olía.

Fyrir nokkru skirfaði ég um frankincense olíuna og magnaða kosti hennar,Lavender en í dag er hún ekki bara notuð af jógum heldur líka innan læknavísindanna. Ilmkjarnaolíur, sem eru vel unnar, geta ýmist verið róandi, upplífgandi, hressandi, skerpt hugann, bætt meltinguna, gefið orku og jafnvel bústað upp kynhvötina. Með auknum áhuga á jóga og öllu því fíngerða sem lífið hefur fram að færa hefur náttúrulegur og vel unninn ilmkjarni án aukaefna loks öðlast réttan sess. Skilningarvitið nef/þefskyn þarf sannarlega sína næringu.

Hér ilmkjarnaolíur sem ég mæli hiklaust með:

Lavender (lofnarblómaolía) hefur unaðslegan ilm. Ferska sæta angan af blómum. Fátt er franskara en lavender sem hefur almennt róandi og góð áhrif á þá sem þjást af ótta. Innan læknavísindanna hefur hún verið notuð sem sótthreinsir og verkjastillandi á minniháttar brunasár og liðverki. Það er frábært að nota lavender í slökun eftir jóga. Það kallar fram alsælu og nokkrir dropar á koddann bæta svefninn. Bættu lavender út í vatnið þegar þú straujar sænguverin (ekki bara fyrir jólin). Þá hefur líka komið í ljós að nokkrir dropar af lavender er eitt besta meðalið við hósta. Berið á bringu og háls og allt fellur í ljúfa löð. Sönnum sögum fer að því að franskir íþróttamenn noti lavender óspart við iðkun sína.

Piparmyntuolían er örvandi. Hún skerpir hugann og slær á hausverk og mígreni, örvar meltinguna og er góð á stífa og auma vöðva. Frábært að nudda á gagnaugun til að draga úr spennu og höfuðverk. Einnig er gott að blanda henni saman við möndluolíu eða aðra grunnolíu og nudda á aum svæði líkamans. Svo er hún mjög hressandi. Það er gaman að segja frá því að í stað þess að þefa af ammoníaki nota nú lyftingamenn fremur hressandi piparmintuolíu til að lyfta níðþungu. Við höfum m.a. haft fregnir af þessu hjá kraftlyftingafólkinu á Nesinu.

Júkalyptusolía hefur ferska og hreina angan sem opnar öndunina. Stundum er sagt að júkalyptus virki vel gegn öllu, sem er að sjálfsögðu hið besta mál. Hún er frábær á slímhúðarvandamál, gegn sveppasýkingu, örverum og vírusum og er bólgueyðandi. Júkalyptus hefur reynst frábærlega gegn kvefi, hósta, astma, stíflum, á sár og vöðvaverki og við þreytu, hún er tannhreinsandi og líka góð til hreinsunar á húð. Það er bæði hressandi og hreinsandi að setja nokkra dropa af júkalyptus út í baðið.

Citronella er alltaf fersk og upplífgandi. Hún eflir sköpunarkraftinn og vermir bæði líkama og anda. Ilmurinn er blanda af jörð, grasi og sítrónu sem m.a. hefur góð áhrif á miðtaugakerfið. Vinnur gegn mígreni og höfuðverk. Hún er þekkt fyrir að fæla burt moskító og jafnvel geitunga. Samkvæmt Ayurveda lífsvísindunum hefur Citronella herpandi eiginleika sem þýðir að hún er góð á feita húð og svo ilmar hún dásamlega.

Tea Tree-olían er fyrir löngu orðin þekkt í óhefðbundnum sem hefðbundnum lækningum enda framúrskarandi góð og mjög vinsæl. Hún hefur herpandi eiginleika og er frábær á feita húð eða feitan hársvörð, um leið sefar hún viðkvæma húð og er góð á minniháttar sár og veldur ekki ertingu. Margir setja fáeina dropa af Tea Tree út í sjampóið sitt með góðum árangri.

Ylang ylang er ein af uppáhalds ilmkjaranolíu margra. Ilmurinn er engu líkur. Það er rómantísk yfirbragð yfir ylang ylang enda er hún eitt það mest róandi sem náttúran gefur af sér. Hún er líka þekkt fegrunarolía og stuðlar að mýkri og sléttari húð en er þó aðallega notuð til að gera hárið glansandi fallegt. Að auki hefur hún bakteríudrepandi áhrif.

Vetiver ilmkjarnaolían dregur þig út í náttúruna og er sannkölluð “núvitundar” ilmkjarnaolía og hin uppáhaldsolía margra.. Hún er notuð gegn streitu og er líka sögð draga úr áhrifum áfalla og er róandi. Nú er víða orðið þekkt að hún virkar vel á athyglisbrest. Vetiver virkar líka vel gegn liðagigt og vefjagigt. Ilmar ekki ósvipað og patchouli með dassi af sítrónu. Í Vetiver er mikið af svökölluðum Sesquiterpene mólíkúlum sem færa súrefni til frumnanna líkt og hemóglópin gerir fyrir blóðið, svo alls ekki vanmeta áhrifamátt vandaðra lífrænna ilmlkjarnaolía, sem hafa meiri áhrif en þig grunar.

Sítróna er frískandi og líkt og citronella eflir hún sköpunarkraftinn. Sítrónu ilmkjarnaolía eykur snerpu en er líka sótthreinsandi og sveppadrepandi og frábær á rispur, minniháttar skurði og önnur opin sár. Gott ráð er að nudda sítrónuolíu á axlir, bringu og háls. Það örvar innra flæði og stuðlar að því að þú komir áformum þínum í framkvæmd.

Sandalviður er einn mest aðlaðandi allra ilma. Sætur, mjúkur viðarilmurinn útskýrir vinsældir sandalviðs. Þessa viðar er getið í 4000 ára gömlum heimildum en hann hefur bæði verið notaður í læknisfræðilegum og líka trúarlegum tilgangi. Sandalviður er róandi og slakandi en líka sótthreinsandi og vatnslosandi. Olíurnar í viðnum róa magann og styrkja taugarnar. Góð blanda fyrir hormónajafnvægið er: 3 dropar sandalviðarolía, 2 dropar salvíuolía og 3 dropar lavender. Setjið út í grunnolíu og notið daglega.

Nerolí ilmkjarnaolía kemur úr beiska hluta appelsínubarkarins. Hún vinnur mjög vel á taugakerfinu öllu og tilfinningalífinu. Nerolí er sögð kvíðastillandi, notuð gegn höfuðverk, græðandi, róandi og lyktareyðandi. Það sem hún örvar líka frumuvöxt er hún frábær á ör og þar af leiðandi uppáhald margra snyrtivöruframleiðenda, í vörur sem eiga að vinna gegn öldrun húðar. Ef þú ert stressaður/stressuð með öran hjartslátt þefaðu þá hressilega af góðri nerolí og ró færist yfir. Nær samstundis.

Ps: Þegar þið fjárfestið í kjarnaolíum skuluð þið ALLTAF gæta þess að þær séu lífrænar og vandaðar. Það líka gott að eiga góðar grunnolíur til þess að setja fáeina dropa af kjarnaolíum út í. Kjarnaolíur eru í raun alveg kyngimagnaðar, kunni maður að nota þær rétt.

Guðrún Kristjánsdóttir

Guðrún Kristjánsdóttir

...er áhugakona um heimspeki, heilsu, lífeðlisfræði, jóga, sjósund, hugleiðslu og ferðalög. Á bakgrunn í blaðamennsku, leikhúsi, var kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík, er stjórnmálafræðingur, jógakennari og stundaði meistaranám í sálgæslufræðum við guðfræðideild HÍ. Er að auki ljón, nörd, fæðu aktívisti og hin systirin í Systrasamlaginu.

Meira