Skuggalega skemmtileg jólasaga

Morgunblaðið Jón Agnar Ólafsson jonagnar@mbl.is

Öllum ber saman um að jólin eru hátíð ljóss, friðar og heilagleika. Allflestar kvikmyndir sem gerðar hafa verið um jólin eru því með hugljúfasta móti. Ein er þó sú mynd sem bregður upp heldur dekkri og drungalegri mynd af jólahaldinu og ekki að furða, því myndin er sprottin úr hugarheimi leikstjórans Tims Burtons.

Myndin, sem nálgast tvítugt, er brúðumyndin Martröð á jólanótt eða The Nightmare Before Christmas. Í myndinni segir frá konungi hrekkjavökunnar, Jack Skellington, sem ræður ríkjum í hrekkjavökuheimi. Hann hefur frá ómunatíð stýrt þeirri hátíð af myndarskap en nú hefur óyndi gripið hann og tilbreytingar er þörf.

Fyrir slysni álpast hann inn í Jólalandið og líst vel á það sem fyrir augu ber. Í framhaldinu ráðleggur hann að taka yfir jólin og gera þau betur úr garði en áður hefur sést. Eins og við er að búast fer margt öðruvísi en ætlað er enda hjálparkokkar Jacks af skuggalegra taginu og meðulin við framkvæmdina ekki alltaf til fyrirmyndar enda fer óttalegt andrúmsloft hrekkjavökunnar ekki svo vel við hátíðlegan anda jólanna. Ýmislegt gengur á áður en yfir lýkur og tvísýnt um framtíð jólanna þegar Skuggabaldur sjálfur skerst í leikinn með áform ægileg. Öll fjölskyldan getur haft gaman af myndinni sem kennir okkur ef til vill að rétt er að taka ekki hátíðinni sem sjálfsögðum hlut heldur beri að þakka fyrir gleði- og friðarjól.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Magnús Scheving með sólgleraugu inni

10:35 Íþróttaálfurinn Magnús Scheving var eitursvalur í Hörpu í gærkvöldi ásamt eiginkonu sinni á tónleikum Bryans Ferrys.   Meira »

Unnur Steinsson í Dallas-teiti

Elín Lára Jónsdóttir og Unnur Steinsson.
18.5. Ný þáttaröð af Dallas-þáttunum verður sýnd í sumar og fjölmenntu Dallas-aðdáendur í grillveislu á Hótel Borg. Þar á meðal var Unnur Steinsson fegurðardrottning. Meira »

Glæsilegustu konur landsins í sumarskapi

22.5. Það var troðfullt út úr dyrum þegar snyrtivörumerkið Burt's Bees var fagnað á Nauthóli.   Meira »

Gló opnar í Hafnarborg - MYNDIR

Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson.
13.5. Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson opnuðu heilsustaðinn Gló í Hafnarfirði. Af því tilefni var lekkert teiti í Hafnarborg þar sem staðurinn er til húsa. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is