Blíður söngur og kertaljós í stað jólakorta
Yfir 200 manns vöknuðu snemma í morgun og mættu í Norræna húsið á hina undurværu Lúsíuhátíð sem haldin er 13. desember ár hvert. Sænski barnakórinn Lúsíukórinn á Íslandi flutti hefðbundin jólalög í tilefni dagsins undir stjórn Mariu Cederborg.
Það var mjög hátíðleg og falleg stund í Norræna húsinu þegar börnin birtust með kertaljósin sem lýstu upp myrkvið.
Að loknum tónleikunum var boðið upp á kaffi og glögg, Lúsíuketti og piparkökur.
Í stað þess að senda út jólakort bauð Norræna húsið vinum og samstarfsfólki á þessa hátíð og þakkar þannig fyrir samfylgdina og samstarfið á árinu sem er að líða.
Í Svíþjóð og á Norðurlöndum er siður að halda Lúsíuhátíð 13. desember þar sem Lúsía og þernur hennar syngja jólalög. Samkvæmt gömlum sænskum heimildum er það elsta dóttirin á heimilinu sem vekur foreldra sína að morgni dags og færir þeim kaffi og lúsíuketti, en lúsíukettirnir eru smábrauð krydduð saffrani sem gerir þau fallega sólgul og ilmandi. Hún er með kertaljósakrans í hárinu, klæðist hvítum kyrtli og syngur Lúsíusöngva. Systur hennar hjálpa til og klæðast einnig hvítum kyrtlum, en bera aðeins eitt kerti í hendi sér.
























