Hvar verður þú á nýársballi?
Nýársveislan á Borginni verður með glæsilegasta móti í ár. Blásið er til gleðskapar í gyllta salnum, einum sögulegasta og alfallegasta veislusal Reykjavíkur. Kvöldið hefst með töfrandi kampavínsdrykk. Hafþór Sveinsson, yfirmatreiðslumaður á Borginni, ætlar að galdra fram fimm rétta veislumatseðil með villibráðarívafi.
Veislustjóri er Daníel Geir Moritz, sem á dögunum var valinn „Fyndnasti maður Íslands“, Dj Anna Brá spilar góða tónlist og hinn ungi og upprennandi Daníel H. Arnarsson syngur nokkur lög.
Fleiri skemmtikraftar stíga á svið undir borðhaldinu. Í lok atriðanna verður meiriháttar flugeldasýning á ítalskan máta. Svo dunar dansinn í dýrlegum draumatakti fram á rauða nótt. Að sögn Gullu MáMíMó, skipuleggjanda nýársfagnaðarins, má búast við viðburðaríku kvöldi í góðum félagsskap. Sjáumst og svífum inn í árið 2012! Í fyrra mættu Ellý Ármanns, Kolbrún Pálína Helgadóttir, Magnús Scheving, Margrét R. Jónasar í Make Up Store, Þorgrímur Þráinsson, Elínrós Líndal og Díana Bjarnadóttir svo einhverjir séu nefndir.
























