Þorgerður Katrín mætti með sparibrosið

Mynd 1 af 10
Fjölskylda Gunnars Eyjólfssonar leikara: Kristján Arason, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðríður Katrín Arason, Karitas Halldóra Gunnarsdóttir og Kjartan Ólafssn. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Stykkið Fanný og Alexander var frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Salurinn var þéttsetinn og ætluðu gestir aldrei að hætta að klappa. Sagan er eftir Ingmar Bergman og fjallar um Fanný og Alexander sem búa á ástríku og hlýju heimili. Skyndilega gerast óvæntir atburðir sem umturna lífi fjölskyldunnar.

Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld léku elskendur í sýningunni og ekki í fyrsta skipti. Þau eiga áratugasögu sem elskendur á sviði. Dætur Gunnars, Þorgerður Katrín og Karítas, mættu ásamt móður sinni og mökum sínum á frumsýninguna.

Sagan um Fanný og Alexander er áhrifarík og heillandi. Leikararnir áttu sviðið og leikmynda- og búningahönnun fullkomnuðu verkið. Vytautas Narbutas hannaði leikmyndina og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir sá um búningahönnun. Þetta er stykki sem enginn má missa af.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Magnús Scheving með sólgleraugu inni

10:35 Íþróttaálfurinn Magnús Scheving var eitursvalur í Hörpu í gærkvöldi ásamt eiginkonu sinni á tónleikum Bryans Ferrys.   Meira »

Unnur Steinsson í Dallas-teiti

Elín Lára Jónsdóttir og Unnur Steinsson.
18.5. Ný þáttaröð af Dallas-þáttunum verður sýnd í sumar og fjölmenntu Dallas-aðdáendur í grillveislu á Hótel Borg. Þar á meðal var Unnur Steinsson fegurðardrottning. Meira »

Glæsilegustu konur landsins í sumarskapi

22.5. Það var troðfullt út úr dyrum þegar snyrtivörumerkið Burt's Bees var fagnað á Nauthóli.   Meira »

Gló opnar í Hafnarborg - MYNDIR

Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson.
13.5. Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson opnuðu heilsustaðinn Gló í Hafnarfirði. Af því tilefni var lekkert teiti í Hafnarborg þar sem staðurinn er til húsa. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is