Partýstand á Golden Globe
Verðlaunaafhendingarnar þegar síðastliðið kvikmyndaár er gert upp eru stjörnunum ávallt tilhlökkunarefni. Eftirpartíin sem stóru framleiðslufyrirtækin halda strax í kjölfarið eru þá ekki minna efni til eftirvæntingar fyrir fræga fólkið því enginn er maður með mönnum nema honum sé boðið í slíkt eftirpartí. Nóg var enda um slíkar samkomur í kjölfar 69. afhendingar Golden Globe-verðlaunanna sem fram fór síðastliðinn sunnudag.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gleðskap sem The Weinstein Company efndi til, en Harvey Weinstein var löngum hæstráðandi hjá Miramax, hinu sögufræga framleiðslufyrirtæki. Hann á að baki ótal úrvalsmyndir síðustu tuttugu ár eða svo og því ekki að undra þótt bekkurinn hafi verið þétt setinn í hófinu sem hann efndi til þegar erlendir blaðamenn í Hollywood höfðu útdeilt gullhnöttum kvöldsins til þeirra sem það áttu skilið. Er ekki annað sjá en allir hafi skemmt sér vel, líka þeir sem ekki hrepptu hnött í þetta sinnið. Það kemur líka ár eftir þetta og því þeim mun nauðsynlegra að hitta fólkið í bransanum.
























