Gáfu forseta bæjarstjórnar grófa ljósmynd

Mynd 1 af 8
mbl.is

Aðstandendur gamanþáttanna Hæ Gosi skemmtu sér konunglega á Strikinu á Akureyri um helgina. Tilefnið var opnun ljósmyndasýningarinnar Hæ Gosi; Halló Akureyri þar sem svipmyndir úr annarri þáttaröð Hæ Gosa voru til sýnis og skálað fyrir frábæru áhorfi á síðustu þáttaröð. „Við vorum þarna hreinlega til að skrifa undir samning um gerð þriðju þáttaraðarinnar við SkjáEinn og vildum gera það í höfuðstað Hæ Gosa!, Akureyri, sem er hjarta þáttarins. Okkur langaði að skála með okkar velunnurum fyrir norðan og kynna í leiðinni verkefnið fyrir fleiri aðilum,“ segir Baldvin Z. hjá Zetafilm en hann mætti til leiks ásamt leikurum og framleiðendum þáttanna svo og Friðrik Friðrikssyni framkvæmdastjóra Skjásins og Hilmari Björnssyni dagskrárstjóra. Forseti bæjarstjórnar, Geir Kristinn Aðalsteinsson, fékk afhenta ljósmynd sem þakklætisvott fyrir gott samstarf við bæjarbúa.

Kjartan með kúk á bringunni!

„Við gáfum  honum mynd af Kjartani Guðjónssyni leikara með kúk á bringunni. Það vakti mikla lukku,“ segir Baldvin sposkur, en þættirnir eru þekktir fyrir að vera bæði grófir og gríðarlega fyndnir en höfundunum barst nýverið liðsstyrkur þegar leikkonan og uppistandarinn Anna Svava Knútsdóttir bættist í hóp handritshöfunda. Hópurinn er kominn vel á veg með handritið að þriðju þáttaröðinni. „Þetta er allt í bullandi swingi. Við höfum verið fjögur að skrifa, ég, Arnór, Katrín og Heiðar en eftir að Heiðar flutti til Bretlands kom Anna Svava inn í staðinn.“ Anna Svava er því á leiðinni með að verða einn eftirsóttasti handritshöfundur á landinu en hún er ein af höfundum skaupsins í ár og hefur komið að skrifum á fleiri sjónvarpsseríum á borð við Makalaus.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Magnús Scheving með sólgleraugu inni

10:35 Íþróttaálfurinn Magnús Scheving var eitursvalur í Hörpu í gærkvöldi ásamt eiginkonu sinni á tónleikum Bryans Ferrys.   Meira »

Unnur Steinsson í Dallas-teiti

Elín Lára Jónsdóttir og Unnur Steinsson.
18.5. Ný þáttaröð af Dallas-þáttunum verður sýnd í sumar og fjölmenntu Dallas-aðdáendur í grillveislu á Hótel Borg. Þar á meðal var Unnur Steinsson fegurðardrottning. Meira »

Glæsilegustu konur landsins í sumarskapi

22.5. Það var troðfullt út úr dyrum þegar snyrtivörumerkið Burt's Bees var fagnað á Nauthóli.   Meira »

Gló opnar í Hafnarborg - MYNDIR

Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson.
13.5. Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson opnuðu heilsustaðinn Gló í Hafnarfirði. Af því tilefni var lekkert teiti í Hafnarborg þar sem staðurinn er til húsa. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is