Kvikmyndin Svartur á leik, sem byggð er á samnefndri bók rithöfundarins Stefáns Mána, var frumsýnd í Smárabíói í gærkvöldi. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem fer með aðalhlutverkið, mætti frá Hollywood til þess að vera viðstaddur frumsýninguna. Frumsýningargestir voru himinlifandi með myndina þótt sumir hefðu orð á því að hún væri dálítið hrottaleg á köflum enda fjallar hún um undirheima Reykjavíkur árið 1999.