Úlfar Finnbjörnsson var að gefa út veglega og flotta matreiðslubók, Stóru alifuglabókina, þar sem deilir sælkerauppskriftum með lesendum. Í tilefni af útkomu bókarinnar sló hann upp partíi ásamt vinum og fjölskyldu.
Úlfar hefur rekið veitingastaði, verið í kokkalandsliðinu, séð um sjónvarpsþætti og skrifað bækur. Til dæmis má nefna Stóru bókina um villibráð sem hlaut frábærar viðtökur og tilnefningu til hinna virtu Gourmand verðlauna sem besta villibráðarbók heims 2011.