Eygló Gunnþórsdóttir listakona og mamma Ásdísar Ránar mætti í glæsilegt partí hjá UN Women þar sem nýrri Fokk ofbeldi afurð var fagnað. Partíið var haldið í Spark Design Space síðasta vetrardag í tilefni af Fokk ofbeldi - taupoka sem kom í sölu sama dag.
Fokk ofbeldi armbandið vakti víða athygli og seldist upp á nokkrum vikum. Vegna mikillar eftirspurnar hefur UN Women á Íslandi látið útbúa taupoka í anda herferðarinnar.
„Pokinn er ætlaður fullorðnum. Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað að hreyfa við fólki og stuðla að vitundarvakningu um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Ef orðalagið fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt að muna að ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og 39 þúsund stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverjum einasta degi eða ein á þriggja sekúndna fresti. Þetta mun aldrei breytast nema að við tökum höndum saman. Ef viðkvæm eyru spyrja út í orðalagið, má líta á það sem rakið tækifæri til að útskýra fyrir þeim alvarleika ofbeldis,“ segir Marta Goðadóttir hjá UN Women.
UN Women á Íslandi hefur unnið náið með Kötlu Rós Völudóttir og Ragnari Má Nikulássyni í gegnum tíðina. Þau áttu hugmyndina að herferðinni, að fá nokkra dansara til að mynda í sameiningu orðin FOKK OFBELDI með líkömum sínum. Myndirnar sýna á táknrænan hátt hvernig vinna þarf sameiginlega gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum. En það var Saga Sig ljósmyndari sem myndaði dansflokkinn. Það er ósk UN Women á Íslandi að pokinn fái fólk til að tala um ofbeldi gegn konum. Með aukinni vitund eiga breytingar sér stað.
Allur ágóði af pokunum rennur í Styrktarsjóð SÞ til afnáms ofbeldis gegn konum og stúlkum sem vinnur að því að uppræta ofbeldi gegn konum og stúlkum í fátækustu löndum heims. Starfsemi UN Women er eingöngu byggð á frjálsum fjárframlögum aðildarríkja SÞ, einkaaðilum og frá frjálsum félagasamtökum og því skiptir hver króna máli.