Íslenska tækni- og hugvitsfyrirtækið Nox Medical hlaut á dögunum Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2016. Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, veitti verðlaununum móttöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, en við sama tilefni fékk Helgi Tómasson, listdansstjóri, sérstaka heiðursviðurkenningu forsetans.
Svo skemmtilega vildi til að Nox Medical fagnaði einnig tíu ára afmæli sínu með heljarinnar veislu í glersalnum í Höfðatorgi. Í veislunni flutti Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ræðu og Júníus Meyvant spilaði fyrir gesti.
Júníus Meyvant spilaði fyrir gesti.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Kristín Karlsdóttir hjá Nox Medical mætti með eiginmanninn upp á arminn.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Pétur Már framkvæmdastjóri, Ragnheiður Elín, Sveinbjörn Höskuldsson, Margrét Jónsdóttir og Þorgerður Katrín hjá Samtökum iðnaðarins stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Smári Rúnar Þorvaldsson hjá Ökrum og Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, léku á als oddi.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Jón Hreinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð, Baldvin Valtýsson hjá Ökrum, Kormákur Hermannsson einn af stofnendum Nox Medical og Sigríður Ingvarsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð voru eldhress.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Anna Eyjólfsdóttir, Sigurður Júlíusson læknir og Elín Rögnvaldsdóttir hjá Vistor.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Aurelie Kajackas, markaðsstjóri ResMed í Evrópu og Ingvar Hjálmarsson markaðsstjóri Nox Medical.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Ástin lá í loftinu.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson
Guðjón Ingi Guðjónsson, Dagrún Árnadóttir hjá Össuri og Ragnheiður Elín brostu sínu blíðasta.
Ljósmyndari Kristján Hjálmarsson