Svona lítur 246 milljón króna brúðkaup út

Einn af kjólum brúðarinnar var úr smiðju Elie Saab.
Einn af kjólum brúðarinnar var úr smiðju Elie Saab. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Rússneskur auðkýfingur spanderaði rúmlega 246 milljónum króna í brúðkaup sonar síns. Brúðkaupið var augljóslega mikið sjónarspil, enda hvergi til sparað líkt og verðmiðinn gefur til kynna.

Í veislunni klæddist brúðurin þremur sérsaumuðum kjólum að verðmæti 25 milljónum íslenskra króna, þar á meðal einum úr smiðju Elie Saab sem kostaði rúmlega 4,3 milljónir. Þá kostaði skartið sem hún bar tæpar 25 milljónir.

Skemmtiatriðin voru heldur ekki af verri endanum, en hljómsveitin Maroon Five spilaði fyrir gesti.

Fleiri myndir má sjá í frétt Daily Mail.

Flennistórar ljósmyndir af brúðhjónunum prýddu veggina.
Flennistórar ljósmyndir af brúðhjónunum prýddu veggina. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Skreytingarnar voru sérlega glæsilegar.
Skreytingarnar voru sérlega glæsilegar. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Sviðið sem plötusnúðurinn var staðsettur á var ekkert slor.
Sviðið sem plötusnúðurinn var staðsettur á var ekkert slor. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Brúðurin stillti sér að sjálfsögðu upp með Adam Levine.
Brúðurin stillti sér að sjálfsögðu upp með Adam Levine. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál