80´s Barinn opnaði um helgina og stemningin var tryllt eins og sést á meðfylgjandi myndum. Staðurinn pakkfylltist og gæddu gestir sér á eldfimum kokteilum sem vöktu mikla athygli. Daddi Diskó var í nostalgíu-gír sem náði hámarki þegar hann endaði á Bonnie Tyler - auðvitað endar nóttin á 80´s Bar alltaf á vangalagi eins og fólk man eftir.