„Það voru um hundrað manns í húsinu þegar mest lét og gestir sungu hástöfum með húsbandinu,“ segir Ingvi Jökull Logason, framkvæmdastjóri H:N Markaðssamskipta, en hið árlega Októberfest var haldið í húsakynnum auglýsingastofunnar í Bankastræti um síðustu helgi þar sem viðskiptavinum og velunnurum er boðið. H:N Markaðssamskipti er ein elsta auglýsingastofa landsins og vekja veislur stofunnar jafnan mikla lukku.
„Við erum svo heppin að hér vinnur skemmtilegt fólk sem á í viðskiptum við enn skemmtilegra fólk. Þetta er uppskrift sem getur varla klikkað,“ segir Ingvi Jökull.
Húsband H:N Markaðssamskipta lék fyrir dansi með Sváfni Sigurðarson, Kristján Frey Halldórsson og Vernharð Jósefsson fremsta í flokki. Þá steig hljómsveitin Vertu þú sjálfur! á svið en hún flytur einungis lög eftir Helga Björns.