Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór voru í essinu sínu þegar systir þeirra, Hanna Borg Jónsdóttir, fagnaði útkomu bókarinnar Rúnar góði. Bókina, sem er barnabók um hugrakkan strák, skrifaði Hanna Borg en Heiðdís Helgadóttir teiknar myndirnar í bókinni.
Útgáfuboðið var á Kexinu og var ákaflega mikil stemning eins og sést á myndunum.
Bókin er skrifuð með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Hún kynnir réttindi barna fyrir ungum lesendum, réttindi sem öll börn í heiminum eiga að njóta. Bókin er þannig mikilvægt veganesti út í lífið.
Bókin er ætluð börnum allt frá þriggja til tíu ára aldurs en hana má lesa með mismunandi áherslum. Í bókinni er að finna hugleiðingar efninu tengdu til að koma umræðum af stað. Eftir því sem börnin eru eldri má kafa dýpra í málefnin og velta upp fleiri hugleiðingum í tengslum við réttindin.