Þórhildur og Hjalti geisluðu á Hjartasteini

Þórhildur Þorkelsdóttir og Hjalti Harðarson.
Þórhildur Þorkelsdóttir og Hjalti Harðarson. mbl.is/Stella Andrea

Kærustuparið Þórhildur Þorkelsdóttir og Hjalti Harðarson geisluðu á frumsýningu Hjartasteins sem fram fór í gærkvöldi í Háskólabíó. Kvikmyndin gerist í litlu sjávarþorpi á Íslandi. Um er að ræða örlagaríka þroskasögu sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. 

Guðmundur Arnar Guðmundsson er leikstjóri Hjartasteins en leikarar myndarinnar eru Gunnar Jónsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Soren Malling, Baldur Einarsson, Blær Hinriksson, Katla Njálsdóttir, Diljá Valsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Daniel Hans Erlendsson, Rán Ragnarsdóttir, Sveinn Sigurbjörnsson, Jónína Þórdís Karlsdóttir og Theodór Pálsson.

Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd. Guðmundur hefur getið sér gott orð sem leikstjóri og handritshöfundur á undanförnum árum fyrir margverðlaunaðar stuttmyndir sínar. Þar hefur Hvalfjörður reynst vera sérlega sigursæl, enda unnið til um 50 verðlauna á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn, þar á meðal sérstök dómnefndarverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013.

Hjartasteinn hlaut þann heiður, fyrst íslenskra mynda, að vera heimsfrumsýnd í keppni á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september 2016. Næstu fjóra mánuði þar á eftir tók myndin þátt í samtals 16 kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn og hlaut í heildina 17 verðlaun og er því orðin ein af verðlaunamestu íslensku myndum síðari ára.

Blær Hinriksson, Rán Ragnarsdóttir, Diljá Valsdóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís …
Blær Hinriksson, Rán Ragnarsdóttir, Diljá Valsdóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir og Daníel Hans Erlendsson. Theodór Pálsson, Baldur Einarsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson. mbl.is/Stella Andrea
Sveinn Sigurbjörnsson, Blær Hinriksson, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Guðmundur Arnar Guðmundsson, …
Sveinn Sigurbjörnsson, Blær Hinriksson, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Guðmundur Arnar Guðmundsson, Daníel Hans Erlendsson, Diljá Valsdóttir og Katla Njálsdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Blær Hinriksson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Daníel Hans Erlendsson og Baldur …
Blær Hinriksson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Daníel Hans Erlendsson og Baldur Einarsson. mbl.is/Stella Andrea
Drífa Harðardóttir, Blær Hinriksson, Hinrik Ólafsson og Birna Sísí.
Drífa Harðardóttir, Blær Hinriksson, Hinrik Ólafsson og Birna Sísí. mbl.is/Stella Andrea
Kristján Kristjánsson, Elísabet Ormslev, Helga Möller og Ellen Kristjánsdóttir.
Kristján Kristjánsson, Elísabet Ormslev, Helga Möller og Ellen Kristjánsdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Jónas Reynir Gunnarsson og Dagur Hjartarsson.
Jónas Reynir Gunnarsson og Dagur Hjartarsson. mbl.is/Stella Andrea
Magnús Guðmundsson og Vala Magnúsdóttir.
Magnús Guðmundsson og Vala Magnúsdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Stefanía Thors og Margrét Einarsdóttir.
Stefanía Thors og Margrét Einarsdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Geir Harðarsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Erla Kristófersdóttir og Margrét Erla.
Geir Harðarsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Erla Kristófersdóttir og Margrét Erla. mbl.is/Stella Andrea
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Lín Björglund og Gró Einarsdóttir.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Lín Björglund og Gró Einarsdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Helgi Gunnarsson og Linda Ósk Sigurðardóttir.
Helgi Gunnarsson og Linda Ósk Sigurðardóttir. mbl.is/Stella Andrea
Aðalsteinn H. Magnússon og Brynhildur Sædís Pétursdóttir.
Aðalsteinn H. Magnússon og Brynhildur Sædís Pétursdóttir. mbl.is/Stella Andrea
Erla Jónatansdóttir og Hildigunnur Finnbogadóttir.
Erla Jónatansdóttir og Hildigunnur Finnbogadóttir. mbl.is/Stella Andrea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál