Jökull Júlíusson söngvari Kaleo er staddur á landinu og lét sig ekki vanta á Þorrablót Aftureldingar sem fram fór í íþróttahúsinu að Varmá á laugardaginn. Hann mætti með kærustuna, Telmu Fanneyju Magnúsdóttur frá Búðardal, og skemmtu þau sér vel eins og þorri Mosfellinga.
Uppselt var á blótið en 700 manns skemmtu sér vel fram eftir kvöldi. Þetta er í tíunda sinn sem Þorrablót Aftureldingar er haldið í þessari mynd og hefur það farið ört stækkandi síðustu ár.
Logi Bergmann stýrði veislunni en meðal söngvara sem fram komu voru Hreimur, Eyþór Ingi, Stefanía Svavars og Raggi Bjarna.
Hér má sjá nokkrar myndir sem Raggi Óla ljósmyndari Mosfellings tók við komuna að Varmá.