Litríkt teiti hjá Hulla

Hjálmar Heiðdal, Hulli, Lotta Lóa, Lóa og Anna Kristín Kristjánsdóttir.
Hjálmar Heiðdal, Hulli, Lotta Lóa, Lóa og Anna Kristín Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Freyja Gylfa

Það hressilegt andrúmsloft í Bíó Paradís þegar fyrsti þáttur af Hulla var sýndur en ný sería fór í loftið á RÚV í gær. Í þáttunum segir frá listamanninum Hulla og nánustu vinum hans í Reykjavík nútímans þar sem himinninn er alltaf grár og mannlífið alltaf litríkt. Þar birtast fyrirferðarlitli bróðirinn Þorri, miðbæjarrottan Bergljót, gillzaði Garðbæingurinn Svanur og gjörspillti umboðsmaðurinn Kiddý. Síðasta þáttaröð endaði á því að Hulli seldi Kölska sál sína, vann Óskarinn og flutti til Hollywood. Sagan heldur áfram.

Hulli er teiknuð útgáfa af höfundi þáttanna, Hugleiki Dagssyni. Hann býr í Reykjavík og er listamaður á niðurleið. Dónalegar myndasögur hans, sem hafa notið töluverðrar velgengni, eru hættar að seljast. Vinir Hulla eru vafasamur hópur. Umboðsmaður hans, Kiddý, er siðlaus eiturlyfjaneitandi með geðhvarfaröskun. Þorri er bróðir Hulla. Hann er lágmæltur rómantíker sem lætur Hulla vaða yfir sig. Bergljót, vinkona Hulla, er eilífðarstúdent. Hún tekur sig alvarlega sem femínista en sækist þó stanslaust eftir viðurkenningu karlmanna. Svanur, bernskuvinur Hulla, er hnakki eins og þeir gerast hnakkalegastir. Hann var einu sinni nörd, en sveik lit þegar hann byrjaði að stunda líkamsrækt. Hulli fyrirgefur honum það seint. Þessi skrautlegi vinahópur hjálpar Hulla í hamingjuleitinni en ekkert virðist ganga upp hjá honum. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.

Aðstandendur
Karakterhönnun: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Teikningar: Hugleikur Dagsson
Stjórnandi teiknimyndagerðar: Kristján Freyr Einarsson
Teiknimyndasmiðir: Kristján Freyr Einarsson, Friðrik Snær Friðriksson, Sigrún Hrefna Lýðsdóttir.
Leikraddir: Hugleikur Dagsson, Þormóður Dagsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Árni Vilhjálmsson, Anna Svava Knútsdóttir, Sigurjón Kjartansson
Handritshöfundar: Hugleikur Dagsson, Þormóður Dagsson, Anna Svava Knútsdóttir
Hugmyndasmiðir: Hugleikur Dagsson, Þormóður Dagsson, Anna Svava Knútsdóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Árni Vilhjálmsson
Tónlist: Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar
Hljóðvinnsla: Friðrik Sturluson
Framkvæmdastjóri: Björg Pjetursdóttir
Framleiðendur: RVK Stúdíós - Sigurjón Kjartansson og Magnús Viðar Sigurðsson
Yfirframleiðandi: Baltasar Kormákur
Leikstjóri: Hugleikur Dagsson

Bjarni töframaður og Gísli í Nexus.
Bjarni töframaður og Gísli í Nexus. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Hilar Þór Jónsson og Aníta Hulda Sigurðardóttir.
Hilar Þór Jónsson og Aníta Hulda Sigurðardóttir. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, Hera Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, Hera Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Arnar Þór Reynisson og Hrönn Sveinsdóttir.
Arnar Þór Reynisson og Hrönn Sveinsdóttir. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Rakel Sif Haraldsdóttir og Margrét Erla Maack.
Rakel Sif Haraldsdóttir og Margrét Erla Maack. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Þrándur Þórarinsson og Róbert Hreinsson.
Þrándur Þórarinsson og Róbert Hreinsson. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Þormóður Dagsson og Hugleikur Dagsson.
Þormóður Dagsson og Hugleikur Dagsson. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Markús Hjaltason og Ágúst Bent.
Markús Hjaltason og Ágúst Bent. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Þorvaldur Jónsson og Ingunn Jónasdóttir.
Þorvaldur Jónsson og Ingunn Jónasdóttir. Ljósmynd/Freyja Gylfa
Margrét Ásta Arnarsdóttir og Davíð Þór Katrínarson.
Margrét Ásta Arnarsdóttir og Davíð Þór Katrínarson. Ljósmynd/Freyja Gylfa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál