Mikið stuð og stemning var á árshátíð Advania sem haldin var síðasta laugardagskvöld í Valsheimilinu. Þetta var þó ekki bara árshátíð því starfsfólk Advania fagnaði líka fimm ára afmæli fyrirtækisins og því bara hún yfirskriftina Djammæli. Tæplega átta hundruð starfsmenn og makar mættu á skemmtunina sem var sú fjölmennasta frá stofnun félagsins.
Hápunktur kvöldsins varð þegar nær 100 smámiða (confetti) sprengjum var skotið upp á sama tíma og Emmsjé Gauti steig á svið til að flytja nokkur af sínum bestu lögum, meðal annars Djammæli.
Sveppi og Steiney sáum um veislustjórn og skemmtu gestum á milli atriða. Ægir Már Þórisson forstjóri hélt ræðu og þakkaði starfsfólki og mökum fyrir framúrskarandi árangur á árinu en árið 2016 var besta rekstrarárið í sögu fyrirtækisins.
Húsband Advania ásamt Made in sveitinni sáu um danstónlistina fram eftir nóttu. Meðfylgjandi myndir segja þó án ef meira enn nokkur orð.