Glatta var á hjalla þegar Ragnar Kjartansson opnaði safnsýningu á völdum verkum í Listasafni Reykjavíkur á laugardaginn. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, opnaði sýninguna sem er sú umfangsmesta sem haldin hefur verið á verkum eins listamanns á safninu. Markús Þór Andrésson er sýningarstjóri en þeir Ragnar eru gamlir vinir og hljómsveitafélagar úr hljómsveitinni Kósý.