Landsmót Landssambands sjálfstæðiskvenna í golfi var haldið á Hamarsvellinum í Borgarnesi á dögunum. Ragnhildur Sigurðardóttir, marfaldur Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni fór með mótstjórn og voru hátt í 80 konur skráðar til leiks. Leikið var í tveimur flokkum og var veðrið á leikdegi með besta móti. Mikil ánægja ríkti meðal þátttakenda, 254 fuglar náðust sé tekið mið af forgjöf og margar spreyttu sig á að ná lengsta högginu á braut 11, Sjálfstæðissleggjunni. Að loknu móti var kvöldverður snæddur á Hótel Hamri þar sem heiðursgestur var Brynjar Níelsson. Góður rómur var gerður að mótinu en þetta er í 4. sinn sem það er haldið og hefur það fest sig í sessi sem árlegt mót.