Söngkonan Hildur Vala söng sig inn í hjörtu landsmanna þegar hún sigraði í Idol-stjörnuleit á Stöð 2 snemma árs 2005. Nú er hún að gefa frá sér plötu með frumsömdu efni og af því tilefni hélt hún heillandi tónleika á Rósenberg. Þetta voru fyrstu tónleikar Hildar Völu í fjölmörg ár.
„Þetta var æðislegur tími og tónlistin er alltaf skemmtileg. Síðan komu þær aðstæður að ég vildi hverfa úr hringiðunni og sinna öðrum viðfangsefnum. Með því bar lífið mig á nýja og skemmtilega staði. Það stóð þó aldrei neitt annað til en að halda áfram að syngja en þá kannski meira á mínum eigin forsendum og eftir því sem hugur minn stæði til,“ sagði Hildur Vala í samtali við mbl.is.