Jólapartí Stellu á Hverfisbarnum

Stella Artois hélt sitt árlega jólapartí á dögunum en það var haldið til að fagna hátíðarútgáfu Stella Artois í 750 ml flösku. Teitið var haldið á Hverfisbarnum og var afar vel mætt. 

Tríóið Hot Eskimos lék ljúfa tóna og Sigríður Thorlacius tók nokkur vel valin lög með þeim félögum. Björn Bragi stjórnaði fögnuðinum af sinni alkunnu snilld.

Stella Artois, í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag, var upphaflega bruggaður sem jólabjór fyrir íbúa Leuven, heimabæjar Stellu. Bjórinn sló svo rækilega í gegn að ákveðið var að brugga hann allt árið um kring. Í dag er Stella Artois mest seldi belgíski bjór heims og langvinsælasti flöskubjórinn á Íslandi.

Þetta kvöld var tilkynnt að Stella Artois hygðist leggja 10 krónur af hverri seldri einingu á tímabilinu 16. nóvember til 16. desember til Umhyggju – félags langveikra barna. Umboðsmaður Stella Artois á Íslandi reið á vaðið með 100.000 kr. framlagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál