Svona á að daðra við konur

Ljósmynd/Pixabay

Verður þú alltaf kjaftstopp þegar þú hittir fallega konu? Hér eru nokkur góð ráð fyrir helgina. 

1. Hugsaðu  um það sem þú ætlar að segja áður en þú segir það. Það eru ekki allir góðir í spuna þannig að þegar þú sérð dömu sem þig langar til að daðra við vertu þá viss um hvað þú ætlar að segja annað en að heilsa bara. Passaðu hins vegar að vera ekki of væminn. Reyndu að finna út hverju hún hefur áhuga á, hvernig fötum er hún í? Eruð þið á sama bar að horfa á sama leikinn? Er hún kannski að tala við vin um eitthvað þar sem þú getur lagt eitthvað til?

2. Brostu. Þegar þú ert að daðra er mikilvægt að þú brosir til manneskjunnar sem þú vilt reyna við. Þú vilt ekki að hún sé feimin eða hrædd við þig. Þegar þú byrjar að tala við dömuna ekki reyna að virðast of mikill harðjaxl. Vertu hress og skemmtilegur og hrósaðu henni.

3. Komdu henni á óvart. Þú vilt stýra samtalinu eins fljótt og auðið er. Þetta gæti komið henni á óvart fyrst en þú stjórnar samtalinu muntu fyrr geta séð hvort hún hefur áhuga eða ekki. Ef þú þekkir hana nú þegar reyndu að tala um umfjöllunarefni sem þú veist að ykkur þykir báðum skemmtilegt. Segðu henni að þú viljir kaupa drykk handa henni. Daður getur verið um allt á milli himins og jarðar hvort sem það er um eitthvað sem þú ert að gera eða hún.

4. Hvað segir líkami hennar þér? Ef hún snýr í áttina að þér hefur hún hugsanlega áhuga en ef hún snýr frá þér hefur hún kannski ekki áhuga. Ef hún reynir að ná augnsambandi hefur hún pottþétt áhuga en ef hún hefur ekki áhuga gæti hún verið að fikta í símanum sínum til að forðast augnsamband. Þessar reglur eru ekki algildar, hugsanlega snýr hún frá þér vegna þess að hún er feimin eða stressuð og þorir ekki að nálgast þig að fyrra bragði. Hún gæti jafnvel verið að stríða þér og reyna að virðast erfið. Eina leiðin til að finna út hvort hún hafi áhuga er að tala meira við hana. Fylgstu með viðbrögðum hennar strax eftir að þú segir eitthvað, áður en hún getur svarað.

5. Notaðu snertingu til að tengjast henni. Farðu samt varlega og farðu alls ekki of langt. Spurðu hvort þú megir sjá höndina á henni til að sjá hringinn hennar, neglurnar eða gefðu henni fimmu. Líkamleg snerting stofnar til tengsla ykkar á milli. Prufaðu jafnvel að færa stólinn þinn nær hennar svo að líkamar ykkar snertist. Ef hún fjarlægist þá finnst henni þetta óþægilegt og þú ert að reyna of snemma. Færðu þig þá aftur til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál