Þráir þú að kynnast glúteinlausum milljarðamæringi?

mbl.is/AFP

Leitin að hinni einu sönnu ást getur tekið á og þá er nú gott að vita af því að internetið er fullt af áhugaverðum deitsíðum þar sem fólk getur hnotið um glúteinlausa ást eða fundið sálufélaga sinn þegar kemur að krydduðum mat. 

Gluten Free Singles. Þessi stefnumótasíða er bara fyrir þá sem neyta ekki glúteins. Þetta er mjög sniðugt enda óþolandi fyrir glúteinlausa konu að vera með manni sem borðar spaghettí út í eitt. Þá verður aldrei jafnvægi í sambandinu. 

Equestrian Qupid. Hér getur hestafólk hnotið um ástina enda fátt rómantískara en að ríða út samana um hollt og hæðir.

Clown Dating. Já, þið lásuð rétt. Ef þú starfar sem trúður og ert í leit að ástinni er þetta síðan fyrir þig. 

Hot Sauce Passion. Þessi stefnumótasíða er fyrir þá sem elska sterkan mat og vilja maka sem gerir það sama.

Amish-Online-Dating. Má Amish-fólk yfir höfuð nota tölvur? Allavega er þessi stefnumótasíða fyrir Amish-fólk sem vill finna sér maka í gegnum vefsíðuna.

Meet-an-Inmate. Stefnumótasíða fyrir þá sem vilja stofna til kynna við fanga, verða pennavinir þeirra og skrifast á.

Millionaire Match. Ef þú ert svakalega rík/ur og vilt finna þér maka sem er líka ríkur geturðu skráð þig á þessa síðu og fundið draumamakann.

Darwin Dating. Þessi stefnumótasíða er fyrir fallegt fólk sem vill finna sér fallegan maka. Síðan auglýsir sig sem stefnumótasíða fyrir fallega fólkið einungis.

Furry Mate. Stefnumótasíðan leyfir þér að skapa dýrapersónu þar sem þú þykist vera dýr og finnur þér maka sem er líka eins og dýr.

Sea Captain Date. Fyrir alla skipstjórana eða sjómennina þarna úti sem vilja finna sér maka!

Purrsonals. Þessi síða er fyrir fólk sem á ketti og vill fá sér maka sem elskar ketti eða á ketti sjálfur.

Mullet Passions. Fyrir alla þá sem fíla mullet-hárgreiðslur.

Women Behind Bars. Þessi er fyrir þá sem vilja stofna til kynna við kvenkyns fanga.

Singles with Food Allergies. Nafnið gefur til kynna hvers kyns stefnumótasíðan er en hún er fyrir fólk með matarofnæmi.

My Free Implants. Síðan gengur út á það að konur skrái sig á síðuna í von um að ríkur karlmaður velji hana, borgi fyrir hana brjóstastækkun og út frá því hefjist rómantískt ástarsamband. 

Conservative Dating Site. Síðan er fyrir þá sem vilja kynnast íhaldssömu fólki.

The Ugly Ball. Síðan er stefnumótasíða fyrir fólk sem finnst það ekki alveg hafa útlitið með sér og viðurkennir það fúslega.

My Lonely Parent. Ef þú átt mömmu eða pabba sem eru einhleyp og einmana er þessi síða fyrir þá sem vilja finna annað foreldri sem einnig er einstætt og einmana svo að þið getið komið foreldrunum saman.

Uniform Dating. Er fyrir þá sem þykir ekkert heitara en einkennisklæddir menn eða konur. 

Ljósmynd/Pixabay
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál