Tilkynntu þungunina með rappi

Hjónin Jesse og Melissa Meek sögðu frá þunguninni með rapplagi.
Hjónin Jesse og Melissa Meek sögðu frá þunguninni með rapplagi. youtube.com

Bandarísku hjónin Jesse og Melissa Meek eigan von á sínu fyrsta barni en það væri svo sem ekki frásögu færandi nema fyrir það að Meek-hjónin tilkynntu vinum sínum og vandamönnum að þau ættu von á barni með rappi. Myndbandið hefur nú vakið heimsathygli.

Verðandi foreldrarnir skelltu sér í bíltúr og komu myndbandsupptökuvél fyrir á mælaborðinu. Svo byrjuðu þau að rappa um barnalánið við lagið sem margir kannast við úr þáttunum The Fresh Prince of Bel Air.

Jesse og Melissa Meek settu myndbandið inn á Youtube um páskana og fljótt voru þau komin með milljón áhorf enda er myndbandið afar óvenjulegt og skemmtilegt.

Meek-hjónin voru einbeitt á svip þegar þau röppuðu um sitt …
Meek-hjónin voru einbeitt á svip þegar þau röppuðu um sitt fyrsta barn. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál