Er besta vinkona þín sálufélagi þinn?

Þær Kim Cattrall, Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kristin …
Þær Kim Cattrall, Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kristin Davis léku bestu vinkonur í þáttunum Beðmál í borginni. AFP

Það er fátt betra en að eiga góða vini, hvað þá bestu vinkonu. En gæti verið að besta vinkona þín sé í raun sálufélagi þinn? Hérna kemur hluti af lista sem birtist á EliteDaily. Kannast þú við einhver af þessum atriðum?

  1. Hún er ekki afbrýðisöm, hún samgleðst þér.
  2. Hún segir þér ekki að þú lítir vel út í ljótu dressi, hún segir þér að gera betur.
  3. Hún dæmir ekki smekk þinn á karlmönnum, hún vill bara að þú sjáir hvers virði þú ert.
  4. Hún lætur þig ekki sitja uppi með leiðinlega gaurinn, hún dregur þig frekar heim.
  5. Hún segir þér ekki það sem þú villt heyra, hún segir þér það sem þú þarft að heyra.
  6. Hún hlær ekki að brandörunum þínum, hún býr þá til með þér.
  7. Hún er ekki afbrýðisöm út í kærastann þinn, hún saknar þín bara.
  8. Hún segir þér ekki að hætta í vinnunni, hún reynir bara að láta þig sjá að þú þarft á betri vinnu að halda.
  9. Hún leyfir þér ekki að slaka á, hún hvetur þig áfram.
  10. Hún vill ekki að þú breytir þér, hún vill að þú breytir því hvernig þú sérð sjálfa þig.
  11. Hún stigur þig ekki af fyrir kærastann, þú ert kærastinn.
  12. Hún dæmir ekki lífstílinn þinn, hún er lífstíllinn þinn.
  13. Hún heldur engu leyndu frá þér en hún veit að það er sumt sem þú þarft ekki að heyra.
  14. Hún berst ekki með þér, hún berst fyrir þína hönd.
  15. Hún segir þér ekki að halda aftur af þér, hún dansar uppi á borði með þér.
  16. Hún segir þér ekki að hætta að drekka, hún tekur seinasta skotið með þér.
  17. Hún baktalar þig ekki, hún segir þér hlutina hreint út.
  18. Hún spyr ekki hvort hún megi koma í heimsókn, hún mætir bara.
  19. Hún þarf ekki heimboð, hún er með aukalykilinn.
  20. Hún „like-ar ekki bara myndirnar þínar, hún er á þeim öllum.
  21. Hún kemur þér ekki bara í leigubíl, hún tekur hann með þér.
  22. Hún sendir þér ekki sms, hún hringir í þig og talar svo klukkutímum skiptir.
  23. Hún biður ekki bara um þitt álit, hún sýnir því innilegan áhuga.
  24. Hún leyfir þér ekki gráta, hún segir þér að hann sé ekki þess virði.
  25. Hún fær ekki föt lánuð hjá þér, hún stelur þeim.
  26. Hún deildir ekki aðeins með þér timburmönnunum, hún veldur þeim.
  27. Hún er ekki að reyna að fatta þig, hún skilur þig.
Courteney Cox (t.v.) og Jennifer Aniston eru bestu vinkonur og …
Courteney Cox (t.v.) og Jennifer Aniston eru bestu vinkonur og ef til vill sálufélagar. JIM RUYMEN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál