„Barnaverndarnefnd Reykjavíkur er glæpasamtök“

Er ósátt við Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
Er ósátt við Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. youtube.com

Sunna Guðrún Eaton eða Sunny Sweetness eins og hún kallar sig á YouTube vandar Barnaverndarnefnd Reykjavíkur ekki kveðjurnar í myndbandi sem hún birti nýverið. Þar líkir hún Barnaverndarnefnd Reykjavíkur við glæpasamtök sem eyðileggur fjölskyldur.

Sunna talar þá meðal annars um að meginþorri þjóðarinnar aðhyllist ekki þær uppeldisaðferðir þar sem börn eru flengd, það þykir henni skrýtið. „Þú mátt ekki hnerra á barn því þá mun einhvern tilkynna þig,“ segir Sunna í upphafi myndbandsins. Hún segist sjálf oft hafa verið tilkynnt til Barnaverndarnefndar, til dæmis fyrir að hafa svelt börnin sín og að hafa notað blótsyrði fyrir framan þau. Sunna, sem á fjögur börn, segir flestar konur sem hún þekkir hafa verið tilkynntar til Barnaverndarnefndar.

„Barnaverndarnefnd Reykjavíkur er glæpasamtök,“ segir Sunna í myndbandinu sem er rúmar 34 mínútur.

Fjög­urra barna móðir ger­ir allt vit­laust

Sunna Guðrún Eaton kallar sig Sunny Sweetness á YouTube og …
Sunna Guðrún Eaton kallar sig Sunny Sweetness á YouTube og gerir allt vitlaust með myndböndum sínum. youtube.com
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál