Bónorðið sem er að gera allt vitlaust

Þessi mynd birtist á Reddit í vikunni og hefur gert …
Þessi mynd birtist á Reddit í vikunni og hefur gert allt vitlaust síðan þá.

Brúðurin á myndinni lítur kannski út fyrir að samgleðjast parinu sem stendur fyrir framan hana en gerir hún það í raun og veru? Þessi mynd af brúðkaupsgesti bera upp bónorð beint fyrir framan nýgift hjónin hefur vakið mikla athygli.

Myndin birtist nýverið á Reddit og hefur síðan þá farið sem eldur um sinu á internetinu. Flestir virðast vera sammála um að uppátæki brúðkaupsgestsins hafi ekki verið viðeigandi.

Brúðkaupsdagurinn er gjarnan talinn einn stærsti dagur í lífi þeirra sem ganga í það heilaga. Allt á að snúast um brúðhjónin og þeirra hjónaband. Þess vegna hefur meðfylgjandi mynd vakið mikla athygli, þarna stálu brúðkaupsgestirnir senunni.

Athugasemdirnar hafa hrúgast inn fyrir neðan myndina. „Brosið hennar segir: „til hamingju“ en augnaráðið segir: „tíkin“,“ skrifaði einn Reddit-notandi. „Ég held að fólk sem gerir eitthvað svona geti hreinlega ekki sætt sig við að vera ekki miðpunktur athyglinnar,“ sagði annar notandi.

Ekki er vitað hvort að brúðhjónin á myndinni hafi vitað af áætlun brúðkaupsgestsins en samt sem áður er gjörningurinn frekar sérstakur.

Það vill engin brúður láta stela af sér senunni á …
Það vill engin brúður láta stela af sér senunni á stóra deginum. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál