Draumar Vatnsberans gætu ræst í júlí

31. júlí verður happadagur hjá Vatnsberanum.
31. júlí verður happadagur hjá Vatnsberanum. mbl.is

Kæri Vatnsberi

Þú munt að öllum líkindum velta vinnuaðstæðum fyrir þér í byrjun júlí. Mundu bara að það tekur tíma að komast í draumastarfið. Ekki gleyma því að hafa trú á þér og dustaðu rykið af þolinmæðinni. Hafðu augun opin því þú gætir fengið tækifærið sem þú hefur beðið eftir.

Júlí verður rómantískur hjá Vatnsberanum. Ógiftir Vatnsberar sem eru í sambandi gætu jafnvel átt von á bónorði. Giftir Vatnsberar ættu að nýta júlímánuðinn í að tala við makann og búa til góðar minningar.

Í kringum 15. júlí verður mikið að gera í vinnunni og þú færð nóg af nýjum verkefnum. Þess vegna ættir þú að nýta fyrri part mánaðar í að skella þér í smá ferðalag og slaka á. Nýttu sumarkvöldin svo í að anda djúpt inn og njóta lífsins, ekki gleyma því.

Úranús er plánetan þín, hún fer hnignandi þann 26. júlí. Þess vegna ættir þú að ljúka við öll mikilvæg verkefni fyrir þann tíma. Vertu vakandi í kringum þessa dagsetningu og sjáðu hvaða skilaboð þú færð frá umheiminum, hafðu augu og eyru opin.  

Ef þig langar til að gera stórar breytingar á útlitinu þá ætti það að vera gert fyrir 25. júlí eða eftir 6. september. Þetta tímabil, frá 25. júlí til 6. september, er ekki rétti tíminn til að halda stórar veislur eða taka mikilvægar ákvarðanir.

31. júlí verður einstakur dagur fyrir þig. Vinabönd munu styrkjast og einhverjir draumar munu jafnvel rætast. Þetta verður þinn happadagur.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál