Nautið ætti að fara í ferðalag í júlí

Nautið ætti að skella sér í ferðalag.
Nautið ætti að skella sér í ferðalag. mbl.is

Kæra Naut

Pláneturnar segja þér að fara í ferðalag. Vertu óhrædd/ur við að pakka ofan í tösku og skelltu þér í ævintýraferð. Upphaf mánaðarins er besti tíminn til að ferðast og skoða nýjar lendur. Ferðalagið mun ganga eins og í sögu.

Taktu af skarið en forðastu þó að gera dramatískar útlitsbreytingar þennan mánuðinn. Ef þú hyggst til dæmis breyta um hárgreiðslu skaltu bíða með það þangað til í september eða október.

Undanfarið hefur þú viljað gera notalegt í kringum þig en það hefur samt ekki verið alveg tímabært. Sýndu smá þolinmæði og leyfðu þessum mánuði að líða. Ef þú ert að hugsa um að kaupa eða selja fasteign eða gera heimilið upp skaltu bíða með það fram í ágúst.

Þetta verður sannkallaður happamánuður hjá þér hvað varðar peninga og ást. Þú munt að öllum líkindum hafa einhvern aukapening á milli handanna þannig að endilega njóttu lífsins og leyfðu þér að fara í smá dekur. Í kringum 25. júlí væri svo tilvalið að splæsa í nýja flík. 9. júlí til 23. júlí er tími ástarinnar hjá Nautinu, nýttu tímann vel.

Í lok mánaðar skalt þú svo vera opin fyrir breytingum í vinnunni, þú gætir átt von á óvæntum fréttum.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál