Sönn ást er að leita af Hrútnum

Rómantíkin mun spila stórt hlutverk í lífi Hrútsins í júlí.
Rómantíkin mun spila stórt hlutverk í lífi Hrútsins í júlí. mbl.is

Kæri hrútur

Það verður brjálað að gera hjá þér allan júlímánuð og þú verður á þönum allan mánuðinn. Það mun ganga vel í vinnunni og mögulega færð þú tækifærið sem þú hefur beðið eftir í langan tíma (og mundu - þú átt það skilið).  Reyndu bara að láta einkalífið ekki trufla þig of mikið í vinnunni. Eitthvað drama mun gera vart við sig innan fjölskyldunnar.

Ef þú hyggst endurinnrétta heimilið þá er tilvalið að skella sér í þær framkvæmdir í kringum 13. júlí. Þetta verður minn mál en þú heldur og þú munt standa þig vel í þessu öllu saman. Fjölskyldan og heimilið mun eiga hug þinn allan um miðjan mánuðinn.

Rómantíkin mun spila stórt hlutverk hjá þér þennan mánuðinn. Pláneturnar eru með þér í liði. Vinnan mun ryksuga upp frítíma þinn en góðu fréttirnar eru að hin eina sanna ást er að leita af þér (ef þú ert á lausu).  Mundu bara að gefa þér smá tíma til að skemmta þér og blanda geði, sérstaklega ef þú ert á lausu. Ef þú ert í sambandi þá er þetta tíminn til að einbeita sér að makanum og leggja metnað í að gera eitthvað skemmtilegt saman.

Föstudagurinn 31. júlí verður svo þinn happadagur í félagslífinu. Breyttu út af vananum og slettu úr klaufunum. Vertu sérstaklega opin/n fyrir að hitta nýtt fólk á þessum degi.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál