Júlí-stjörnuspá Susan Miller

Susan Miller er með funheita stjörnuspá.
Susan Miller er með funheita stjörnuspá.

Júlí verður hressandi mánuður hjá stjörnumerkjunum. Frægasti stjörnuspekingur heims, Susan Miller, segir að hin eina sanna ást muni banka upp hjá Hrútnum.

Rómantíkin mun spila stórt hlutverk í lífi Hrútsins í júlí.
Rómantíkin mun spila stórt hlutverk í lífi Hrútsins í júlí. mbl.is

HRÚTURINN

Það verður brjálað að gera hjá þér all­an júlí­mánuð og þú verður á þönum all­an mánuðinn. Það mun ganga vel í vinn­unni og mögu­lega færð þú tæki­færið sem þú hef­ur beðið eft­ir í lang­an tíma (og mundu - þú átt það skilið).  Reyndu bara að láta einka­lífið ekki trufla þig of mikið í vinn­unni. Eitt­hvað drama mun gera vart við sig inn­an fjöl­skyld­unn­ar.

Nautið ætti að ferðast og skoða nýja staði í byrjun …
Nautið ætti að ferðast og skoða nýja staði í byrjun júlí. mbl.is

NAUTIÐ

Þetta verður sannkallaður happamánuður hjá þér hvað varðar peninga og ást. Þú munt að öllum líkindum hafa einhvern aukapening á milli handanna þannig að endilega njóttu lífsins og leyfðu þér að fara í smá dekur. Í kringum 25. júlí væri svo tilvalið að splæsa í nýja flík. 9. júlí til 23. júlí er tími ástarinnar hjá nautinu, nýttu tímann vel.

Tvíburinn ætti að fara vel yfir fjármálin í júlí.
Tvíburinn ætti að fara vel yfir fjármálin í júlí. mbl.is/AFP

TVÍBURINN

Í upphafi mánaðar verður þú staðráðin/n í að ná tökum á fjármálunum. Gefðu þér tíma til að fara yfir skuldir, útgjöld og sparnaðarreikninga. Ef það hefur einhvern tímann verið rétti tíminn til þess að fara ofan í saumana á fjármálunum þá er það núna.

Krabbinn ætti að nýja júlímánuð til að breyta til.
Krabbinn ætti að nýja júlímánuð til að breyta til. mbl.is

KRABBINN

Ef þú ert í sambandi mun makinn eiga hug þinn allan í júlí. Sambandið mun taka jákvæðum breytingum og ógiftir krabbar fara jafnvel að íhuga hjónaband. Giftir krabbar ættu þá að setjast niður með maka sínum og fara yfir sameiginleg markmið. Þeir sem eru óhamingjusamir í sambandinu ættu að nýta þennan tíma breytinga til að koma sér úr sambandinu.

Það verður mikið að gera hjá Ljóninu þennan mánuðinn.
Það verður mikið að gera hjá Ljóninu þennan mánuðinn. mbl.is

LJÓNIÐ

Það verður brjálað að gera hjá þér þennan mánuðinn. Þú ættir að nýta tímann vel og skynsamlegt væri að hjóla í öll ókláruð verkefni. Þú færð líka hrós fyrir vinnuframlag þitt, þetta er uppskerutíminn.

Meyjan þarf að mæta í mörg partý og veislur í …
Meyjan þarf að mæta í mörg partý og veislur í júlí, það verður nóg að gera. mbl.is

MEYJAN

Seinasti mánuður var uppfullur af breytingum í vinnunni. Þennan mánuðinn færðu meiri tíma fyrir félagslífið. Pláneturnar eru þannig staðsettar að fjör er að færast í leikinn. Vinirnir munu eiga hug þinn allan í júlí og stemningin verður allsráðandi. Það verður svo mikið að gerast að þú þarft að velja og hafna. Í upphafi mánaðar mun rómantíkin svo ráða ríkjum, sönn ást mun jafnvel gera vart við sig.

Vogin ætti að skella sér á rómantískt stefnumót í lok …
Vogin ætti að skella sér á rómantískt stefnumót í lok mánaðar. mbl.is

VOGIN

Þú ættir að einbeita þér að starfsframanum fyrstu þrjár vikurnar í júlí. Leggðu metnað í að reyna að koma þér á framfæri. Ekki gleyma því að það er samkeppni þarna úti. Ef þú ert að leita að nýju starfi þá skalt þú gera heimavinnuna þína áður en þú mætir í starfsviðtal, hafðu allar upplýsingar á hreinu.

Sporðdrekinn gæti átt von á að fá stöðu- eða launahækkun …
Sporðdrekinn gæti átt von á að fá stöðu- eða launahækkun af einhverju tagi í júlí. mbl.is

SPORÐDREKINN

Það gengur allt vel í vinnunni. Júlí verður ákveðinn uppskerutími fyrir þig þannig að núna færðu þá viðurkenningu sem þú átt skilið fyrir vel unnin störf. Í byrjun mánaðar gætir þú svo átt von á stöðu- eða launahækkun af einhverju tagi. Pláneturnar eru með þér í liði og heppnin verður með þér.

Rómatíkin mun gera vart við sig hjá Bogamanninum í kringum …
Rómatíkin mun gera vart við sig hjá Bogamanninum í kringum mánaðarmótin júlí-ágúst. mbl.is

BOGAMAÐURINN

Í byrjun mánaðar færð þú tækifæri til að koma fjármálunum á réttan kjöl, svo útbúðu fjárhagsáætlun fyrir framtíðina. Samningsviðræður muna fara vel, sérstaklega fyrstu vikuna í júlí, og þú gætir grætt smá þennan mánuðinn. Þessi aukapeningur kemur sér vel.

21. júlí og 22. júlí verða happadagar hjá Steingeitinni.
21. júlí og 22. júlí verða happadagar hjá Steingeitinni. mbl.is

STEINGEITIN

Öll þín athygli verður á samböndum við maka, nána vini og fjölskyldu í byrjun mánaðar. Ef þú ert í ástarsambandi þá er þetta rétti tíminn til að grandskoða það. Mögulega mætti eitthvað betur fara? Það koma líklega upp einhver ágreiningsmál og þú munt fá mikla þörf fyrir að útskýra mál þitt en ekki gleyma að hlusta.

31. júlí verður happadagur hjá Vatnsberanum.
31. júlí verður happadagur hjá Vatnsberanum. mbl.is

VATNSBERINN

Þú munt að öllum líkindum velta vinnuaðstæðum fyrir þér í byrjun júlí. Mundu bara að það tekur tíma að komast í draumastarfið. Ekki gleyma því að hafa trú á þér og dustaðu rykið af þolinmæðinni. Hafðu augun opin því þú gætir fengið tækifærið sem þú hefur beðið eftir.

Félagslífið mun blómstra hjá Fiskunum í júlí.
Félagslífið mun blómstra hjá Fiskunum í júlí. mbl.is

FISKARNIR

Júlí byrjar vel hjá þér og það verður nóg að gera í félagslífinu. Þér verður boðið í skemmtilegar veislur þar sem þú nærð að kynnast nýju fólki, mögulega valdamiklu fólki. Nýttu þennan tíma í að njóta tónlistar eða myndlistar og hlúðu að tengslanetinu þínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál