Svona eru stjörnumerkin í rúminu

Hvaða stjörnumerki ert þú?
Hvaða stjörnumerki ert þú? AFP

Það getur tekið talsverðan tíma að kynnast maka sínum í rúminu. Fólk hefur misjafnan smekk og finnst oft erfitt að byrja að tala um kynlíf í upphafi sambands. Síðan Mindbodygreen tók saman lista sem sýnir hvað hverju stjörnumerki finnst gott í rúminu. Nú getur þú forðast þessar erfiðu samræður og athugað hvað hentar stjörnumerki þínu og maka þíns.

Hrútur 22. mars - 19.apríl

Hrúturinn fílar spennu í sambandinu og vill ekki láta sér leiðast í rúminu. Hann fílar áskoranir og vill fá að vinna fyrir því að fá fullnægingu.

Naut 20. apríl - 20. maí 

Nautið elskar snertingu og er afar tilfinninganæmt. Því er alveg sama þó það sé alltaf í sömu stellingunni svo lengi sem það nær að stunda kynlíf fimm til sjö sinnum í viku.

Tvíburi 21. maí - 21. júní

Tvíburinn elskar að fara ótroðnar slóðir, leika sér og láta makann elta sig í rúminu. Hann er opinn fyrir hlutverkaleikum og fílar mikla snertingu.

Krabbi 22. júní - 22. júlí

Krabbinn er rómantískur og tilfinningaríkur. Hann vill finna fyrir öryggi og því þarf að leyfa honum að njóta sín í rúminu.

Ljón 23. júlí - 22. ágúst 

Ljónið elskar að vera miðpunktur athyglinnar. Það er afar ástríðumikið og fer alla leið í rúminu.

Meyja 23. ágúst - 22. september

Meyjan er tákn hreinleikans og gefur sér tíma til að stunda kynlíf. Hún hugar að tækninni og getur verið að í heilan dag.

Vogin er opin fyrir öllu og er til í að …
Vogin er opin fyrir öllu og er til í að krydda upp kynlífið með leikföngum. Af vef London Fire Brigade

Vog 23. september - 22. október

Vogin er afar rómantísk og þú nærð henni ekki upp í svefnherbergi nema með forleik. Það getur tekið tíma að sannfæra hana en þegar hún er komin í stuð er hún til í allt, leikföng og annað.

Sporðdreki 23. október - 21. nóvember

Sporðdrekinn er oft þekktur sem kynlífsstjörnumerkið. Þeir geta verið afar klúrir í rúminu og elska dónatal. Sporðdrekinn vill þó ekki skuldbinda sig en elskar kynlíf. Hann verður að finna fyrir því að hann hafi ákveðna stjórn.

Bogmaður 22. nóvember - 21. desember

Bogmaðurinn er frjálslegur og til í allt. Hann elskar nýjungar og er alltaf til, hvar og hvenær sem er.

Steingeit 22. desember - 19. janúar

Steingeitin vinnur mikið og hefur ekki alltaf tíma fyrir kynlíf. Hún getur þó alltaf tekið sér smá pásu í vinnunni og elskar að stunda kynlíf á spennandi stöðum eins og á skrifstofunni. Hún vill hafa yfirhöndina og leynir á sér. Hún á það til að vera aðeins of djörf.

Vatnsberi 20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberinn vill stunda einstakt og öðruvísi kynlíf. Hann er skemmtilegur og nýjungagjarn og er til í að stunda kynlíf með fleiri en einum í einu.

Fiskar 19. febrúar - 20. mars 

Fiskarnir eru rómantískir og dulrænir. Þeir vilja láta koma sér á óvart og fíla mikla íburði í svefnherberginu.

Stjörnumerki dýrahringsins.
Stjörnumerki dýrahringsins. Af Wikipedia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál