Eiga börn að vakna á nóttunni?

mbl.is/AFP

„Nýlega rakst ég á grein um svefn barna sem bendir á að það er eðlileg hegðun barns að vakna á nóttunni. Greinin er úttekt á rannsókn sem gerð var frá Swansea-háskóla í Whales og sýnir að flest börn undir eins árs vakna amk einu sinni á nóttunni,“ segir Soffía Bærings doula í sínum nýjasta pistli á Smartlandi Mörtu Maríu

Spurningalisti var lagður fyrir 715 mæður barna á aldrinum 6-12 mánaða og þær spurðar út í svefnvenjur barnanna, hve oft þau vöknuðu og hvort þær nærðu börn sín þegar þau vöknuðu.

Niðurstöðurnar voru að 75% barna á þessum aldri vaknaði enn reglulega á nóttunni, amk einu sinni yfir nóttina og sex af hverjum tíu börnum fengu að drekka mjólk í það minnsta einu sinni.

Annað sem var mjög áhugavert var að það var enginn munur á næturvöknun barna sem voru á brjósti eða á pela. Eins virtist ekki skipta máli upp á næturvöknun hve oft börnin nærðust yfir daginn eða hve margar máltíðir þau fengu. Mæður með börn á brjósti gáfu börnum sínum þó oftar að drekka á nóttunni.

mbl.is/AFP
Soffía Bæringsdóttir doula.
Soffía Bæringsdóttir doula.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál