Svona lætur þú sambandið líta vel út á Instagram

Svona getur þú látið ástarlífið líta mun betur út á …
Svona getur þú látið ástarlífið líta mun betur út á samfélagsmiðlunum en það er í raun. Ljósmynd/Skjáskot The Telegraph

Fólk á það til að sýna líf sitt á mun glæsilegri og meira spennandi hátt á samfélagsmiðlunum en það er í raun. Hér koma nokkur ráð af síðunni Women's Health sem lesendur geta nýtt sér til þess að láta ástarlíf sitt líta út fyrir að vera mun meira spennandi á samfélagsmiðlunum en það er í raun. Fyrsta skrefið er að finna ljósmyndara sem er reiðubúinn í að taka myndir af þér og elskunni þinni.

Óvænti kossinn

Í þessa mynd þarf ekki mikið af leikmunum heldur er nóg að taka hana úti í fallegu veðri og leika sér svo með filterana á Instagram til að gera hana enn betri.

Rómantísk hjólaferð saman

Hvað er ekki rómantískt við hjólaferð í kvöldsólinni? Það er einfalt að ná góðri og rómantískri mynd og með réttum filterum getur þá látið alla halda að þið séuð hamingjusamasta par á jörðinni.

Sitja á bekk og horfa á sjóinn

Hér skiptir afar miklu máli að velja bekk sem staðsettur er á fallegum stað með fallegu útsýni. Þegar það er komið er eftirleikurinn auðveldur, taka myndina og setja á hana fínan Instagram-filter.

Taka mynd af sér í hrúgu af laufum

Þessi mynd verður að vera tekin að hausti til en annars er framkvæmdin auðveld. Raðið saman laufum í hrúgu og leggist með fæturna í andstæðar áttir og höfuðin saman. Það getur ekki orðið rómantískara.

Fólk á það til að sýna líf sitt á mun …
Fólk á það til að sýna líf sitt á mun glæsilegri og meira spennandi hátt á samfélagsmiðlunum en það er í raun. Ljósmynd/Getty Images

Mynd af skónum ykkar saman

Mynd af skónum ykkar saman er einföld og krúttleg en lætur fólk samt fá á tilfinninguna að þið séuð afar hamingjusöm.

Mynd af ykkur leiðast

Haltu í höndina og leiddu hann. Best er ef annar aðilinn er að benda og draga hinn á spennandi slóðir.  

Búa til hjarta saman með höndunum

Að búa til hjarta saman með höndunum er klassískt myndefni sem þreytist aldrei. Hér skiptir birtan á myndinni gífurlegu máli og því er best að taka myndina þegar sólin er hátt á lofti.

The Notebook

Myndina The Notebook ættu flestir að kannast við. Í henni má sjá afar fallegt atriði þar sem aðalpersónan, Allie, hoppar upp í fang ástmanns síns, Noah, og þau kyssast rembingskossi í rigningunni. Prófið að leika þetta eftir og þið gætuð náð afar rómantískri mynd.

Myndir í sólsetrinu geta verið afar rómantískar.
Myndir í sólsetrinu geta verið afar rómantískar. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál