Svona kryddar þú kynlífið

Ertu orðin/n þreytt/ur á sama gamla trúboðanum inni í svefnherbergi?
Ertu orðin/n þreytt/ur á sama gamla trúboðanum inni í svefnherbergi? Ljósmynd/Getty Images

Langar þig að hressa upp á kynlífið? Ertu orðin/n þreytt/ur á sama gamla trúboðanum inni í svefnherbergi? Ekki örvænta því hér koma uppástungur að nokkrum skemmtilegum stöðum til að stunda kynlíf á sem vefurinn Cosmopolitan tók saman.

Stóllinn

Það getur verið gaman að krydda kynlífið með því að stunda það í stól. Stóllinn er í rauninni engin svakaleg tilbreyting frá rúminu en getur verið skemmtilegur af og til.

Kommóðan

Kommóðan er klassískur staður til að stunda kynlíf á. Hún býður upp á meiri fjölbreytileika en stóllinn og hér er um að gera að nota ímyndunaraflið. Gott er að hafa í huga að aðeins annar aðilinn á að vera ofan á kommóðunni.

Sturtan

Sturtan er þægilegur staður til að stunda kynlíf. Fólk er vant því að vera nakið í sturtu og ætti því ekki að kippa sér upp við það að skella sér saman. Sturtuklefar eru misstórir og því getur þessi staður reynst erfiður ef klefinn er lítill, en þá er um að gera að nota ímyndunaraflið.

Langar þig að krydda upp á kynlífið?
Langar þig að krydda upp á kynlífið? Ljósmynd/Getty Images

Eldhúsborðið

Það getur verið afar kynþokkafullt að stunda kynlíf á eldhúsborðinu en þá er best að það sé óplanað. Það er ekkert sexí við það að plana kynlíf á eldhúsborðinu klukkan 16 rétt áður en fjölskyldan kemur í mat klukkan 19.

Bíllinn

Margir stunduðu kynlíf gjarnan úti í bíl á sínum æskuárum til að forðast það að foreldrarnir löbbuðu inn á athöfnina. Kynlíf í bíl getur verið skemmtilegt afturhvarf til fortíðar en ef bíllinn er geymdur inni í bílskúr verður að passa upp á að bílskúrsdyrnar séu opnar svo ekki verði slys.  

Þvottavélin

Kynlíf ofan á þvottavél getur verið eins og kynlíf ofan á kommóðu eða eitthvað allt annað. Með því að stilla þvottavélina á mikinn hraða þar til hún fer að hristast getur kynlífið orðið afar líflegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál