Vinsælustu kynlífstækin árið 2016

Gerður Huld Arinbjarnardóttir.
Gerður Huld Arinbjarnardóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í fyrra sagði Smartland frá vinsælustu kynlífstækjunum 2015 en nú er kominn nýr listi fyrir slíka gripi fyrir árið 2016. Það er Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush.is sem tók listann saman. 

„Vinsældir kynlífstækja hafa aldrei verið meiri hér á landi en það eru þó ekki allir jafnfróðir um þessi tæki og því gott að fá ráð og hugmyndir um hvaða tæki eru vinsæl hverju sinni. Blush hefur verið leiðandi í sölu kynlífstækja á Íslandi síðustu 5 ár,“ segir Gerður Huld. 

Womanizer.
Womanizer.



1. Womanizer Delux & W40

„Þetta tæki hefur algjörlega sprengt skalann hvað varðar vinsældir. Womanizer er vinsælasta tæki í heimi um þessar mundir og er það mjög skiljanlegt enda alveg frábært tæki. Tækið er fullkomin blanda af léttu sogi og djúpum titringi sem veitir bestu mögulegu örvun fyrir snípinn. BuzzFeed gerði myndband sem hefur farið eins og eldur um sinu á netinu, þar fengu þeir nokkrar konur til að prófa græjuna. Ég mæli með því að þið kíkið á þetta video og sjáið viðbrögðin https://youtu.be/WwW_VtlHcV0,“ segir Gerður. 

Echo-egg frá Svakom.
Echo-egg frá Svakom.

2. Echo – Svakom

„Ég segi alltaf að ef þú ætlar að eiga eitthvað kynlífstæki þá þarftu að eiga egg! Echo-eggið frá Svakom er langvinsælasta eggið okkar. Það er lítið og nett með góðum titringi og er endurhlaðanlegt. Echo-eggið er þægilegt í laginu og fellur vel í lófa. Auðvelt er að nota eggið í kynlífi með maka til að örva snípinn eða til að njóta ein með sjálfri þér,“ segir hún. 

3. Libido Forte

„Náttúrulegar stinningartöflur fyrir karlmenn sem unnar eru úr japanska jurtaríkinu. Náttúrulyfið er hannað til að auka þol og stinningu. Þessar töflur hafa slegið öll met og voru meðal annars valdar sem besta stinningarlyfið árið 2013 í Evrópu. Engar þekktar aukaverkanir eru af jurtunum og er virknin í þeim ca. 18-24 klukkutímar. Við erum búin að selja þessar jurtir núna í 2 ár og það er alveg klárt mál að þetta virkar gríðarlega vel. Maður sér það bara á því hversu hátt hlutfall af viðskiptavinum kemur aftur og aftur. Ég hef það líka þannig að ef töflurnar henta þér ekki þá má skila þeim og fá endurgreitt,“ segir Gerður. 

Flip Zero er ný runkmúffa frá Tenga.
Flip Zero er ný runkmúffa frá Tenga.

4. Flip Zero – Tenga

„Flip Zero er múffa fyrir karlmenn frá merkinu Tenga sem er eitt öflugasta fyrirtækið á markaðnum í dag þegar kemur að framleiðslu herra vara. Flip Zero er nýjasta runkmúffan frá þeim en hún er betrumbætt útgáfa af múffunni Flip Hole. Hólkurinn í múffunni er fóðraður með mjúku siliconi og er auðvelt að þrífa hana. Ég á von á því að vinsældir á herravörum munu aukast verulega árið 2017, það er svo rosalega mikið af flottum vörum fyrir herra að bætast í hópinn.“

Primo frá Svakom.
Primo frá Svakom.

5. Primo – Svakom

„Primo er ný vara frá Svakom og er „but plug“ sem hugsaður er fyrir konur og karla til að örva endaþarm eða P-blett. Tækið býður upp á svo marga möguleika í notkun, sem dæmi hefur það mjög öflugan titring svo auðvelt er að nota það til að örva snípinn eða inn í leggöngin. Kosturinn við þennan but plug er að hann er með flatan enda svo það er hægt að nota hann á meðan maður stundar kynlíf án þess að hann sé fyrir. Fjarstýring fylgir með tækinu svo auðvelt er að skipta um stillingar,“ segir Gerður. 

Partner Plus frá Partner Toy.
Partner Plus frá Partner Toy.


6. Partner Plus

„Partner Plus frá Partner Toy er vinsælasta paratækið okkar. Tækið hentar einstaklega vel fyrir þær konur sem þurfa létta örvun og eiga frekar auðvelt með að fá fullnægingu. Tækið er notað í kynlífi og fer grennri endinn inn í leggöngin með typpinu á meðan breiðari endinn titrar og örvar snípinn. Tækið er að sjálfsögðu endurhlaðanlegt eins og öll tæki sem seld eru hjá Blush.“

Tyler frá Svakom.
Tyler frá Svakom.

7. Tyler – Svakom

„Tyler frá merkinu Svakom er fjölbreytt tæki sem hægt er að nota sem egg til að örva snípinn, sem fingratitrara eða sem tippahring sem titrar. Tækið er hannað sem tippahringur en tippahringir eru hugsaðir til að þrengja aðeins að sáðrásinni og halda betri stinningu fyrir karlmanninn og jafnframt örvar snípinn hennar líka á meðan. Einnig dýpkar hringurinn fullnæginguna fyrir hann með því að þrengja að. Þetta er því að mínu mati besta paratækið árið 2016 enda frábært tæki og ekki skemmir fyrir að það er einstaklega hljóðlátt.“

Alice – Svakom.
Alice – Svakom.


8. Alice – Svakom

„Alice er nettur titrari sem örvar bæði G-blettinn og snípinn á sama tíma. Hann er með mjúkri silicon áferð og er að sjálfsögðu endurhlaðanlegur og einnig 100% vatnsheldur. Alice er frábær titrari fyrir þær konur sem vilja upplifa tvöfalda örvun.“

Fairy.
Fairy.

9. Fairy

„Fairy er nuddvöndur sem fæst bæði í „regular size og mini“. Vendinum er stungið í samband við rafmagn og er gríðarlega kraftmikill. Notagildið er frábært þar sem hægt er að nota vöndinn bæði sem nuddtæki og kynlífstæki. Þú getur svo keypt alls konar aukahluti á tækið til að gera það enn þá meira spennandi. Þarna ertu að fá mjög mikið fyrir peninginn og jafnvel eignast þitt uppáhaldstæki. Einnig er gott að taka það fram að tækið hentar ekki bara fyrir konur þar sem karlmenn hafa lofað þetta tæki og þá sérstaklega aukahlutinn Stroke sem er sérstaklega ætlaður fyrir karlmenn.“

Iroha frá Tenga.
Iroha frá Tenga.

10. Iroha – Tenga

„Iroha eru egg sem eru extra mjúk frá merkinu Tenga. Þetta egg varð fyrst vinsælt þegar að Kim Kardashian tjáði sig um að þetta væri hennar uppáhaldskynlífstæki og eftir að fólk hefur prufað tækið hefur salan rokið upp. Tækið er hugsað til að örva snípinn og er dúnmjúkt viðkomu, endurhlaðanlegt eins og öll önnur tæki frá Blush og með mjög góðum kraft.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál