Ástin er flókið fyrirbæri og margir hverjir velta því fyrir sér hvort þeir hafi raunverulega orðið ástfangnir. Þið sem eruð enn að velta því fyrir ykkur, hafið líklega ekki orðið það því þeir sem hafa lent í ástinni vilja meina að það sé ekkert vafamál.
Þú vilt deila öllu með honum
Það að deila þínum dýpstu þrám og leyndarmálum með honum verður jafneðlilegt og að draga andann. Þig langar að allir viti allt um þig og þig langar að vita allt um hann.
Þér finnst þið aldrei eyða nógu miklum tíma saman
Þegar maður kemst í návist við réttu manneskjuna fyrir sig í lífinu langar mann fátt annað en að vera með henni öllum stundum.
Það hljómar betur að hanga heima
Þegar þig er farið að langa að hanga heima með ástinni þinni framar öllu öðru, janvel að kíkja út með bestu vinkonunum veistu að þú elskar hann.
Þú ert með firðing í maganum
Þú hefur heyrt fólk tala um fiðringinn en aldrei upplifað hann fyrr en nú. Þú færð firðing við það eitt að hugsa um hann. Já þú ert ástfangin.
Þú sérð framtíðina fyrir þér með honum
Hugurinn fer að reika og það eina sem þú sérð fyrir þér ert þú og hann. Þið saman að lifa lífinu og takast á við verkefni þess.