Mikið hefur verið rætt um fávitaskap íslenskra karlmanna undanfarið, en sumir hverjir eru ansi gjarnir á að senda ógeðfelld skilaboð til kvenna í gríð og erg.
Frétt mbl.is: Birta skilaboð frá íslenskum fávitum
Vandamálið er síður en svo séríslenskt, eins og sjá má á myndbandi sem fer nú eins og eldur í sinu um netheima.
Þar sést ung bresk kona ná sér niðri á nokkrum dónaköllum sem höfðu gert henni lífið leitt og verið með dónaskap og yfirgang.
Vefurinn Elle bendir á að ekki hafi verið staðfest hvort myndbandið hafi verið sviðsett eða ekki, en sitt sýnist hverjum.