Tekur 100 þúsund á tímann

Kenneth Play er markþjálfi með sérstöðu.
Kenneth Play er markþjálfi með sérstöðu. Ljósmynd/Facebook

Það er óhætt að segja að starf Kenneth Play sé dálítið sérstakt. Hann er markþjálfi og hefur atvinnu af því að kenna pörum hvernig þau geta bætt kynlíf sitt. Hann heldur úti vinsælli heimasíðu þar sem fólk getur fengið nasaþefinn af því sem í boði er. Þar kennir hann til dæmis fólki að skvörta. 

Í viðtali við Independent lýsir hann fyrirkomulaginu á þann veg að hann bjóði fyrst upp á léttar veitingar, þá taki við þriggja tíma fyrirlestur um hvernig best sé að bera sig að við holdsins lystisemdir en rúsínan í pylsuendanum er svo tveggja tíma áhorf Kenneth þar sem hann veitir leiðbeiningar og hvetur áfram í beinni þegar parið reynir að tileinka sér það sem hann er búinn að kenna á pappír.

Kenneth Play er mjög vinsæll og kostar leiðsögnin litlar 100.000 kr. á tímann. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af spaðanum notar hann óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu en kynningarmyndin minnir lítið á hefðbundnar myndir af markþjálfum eins og við þekkjum þá hér á Íslandi. Kannski er þetta eitthvað sem íslenskir markþjálfar ættu að velta fyrir sér nú á tímum aukinnar samkeppni á sviðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál