Njósnar um nýju kærustuna

Konan getur ekki hætt að skoða myndir af nýju kærustu …
Konan getur ekki hætt að skoða myndir af nýju kærustu fyrrverandi kærasta síns. mbl.is/Thinkstockphotos

Kæra E. Jean. Ég er 25 ára hávaxin málari með ávalar línur og ekki ljót. Ég á góða vini og yndislegan kærasta, en í þrjú ár hef ég njósnað um fallega stelpu sem fyrrverandi kærasti minn sagði mér upp fyrir. Ég er löngu komin yfir fyrrverandi kærastann minn. Það er bara hún sem ég get ekki hætt að hugsa um.

Mér finnst þetta vandræðalegt. Mig langar ekki að vera svona. Ég skoða Instagramið hennar og Facebookið oft á dag. Þrátt fyrir að ég hafi aldrei hitt hana finn ég fyrir óöryggi. Það hjálpar ekki til að hún er rosalega mjó með fullkomna beinabyggingu og á sér mikið félagslíf. Þannig að í hvert skipti sem ég sé mynd frá henni líður mér illa. Það að vera alltaf að skoða hana lætur mér líða andlega veikburða og óhæfri. Hvernig get ég hætt þessu spyr kona ráðgjafa Elle. En hún mundi heldur betur vilja hætta að vera með nýju kærustu fyrrverandi kærasta síns á heilanum.

Konunni líður illa með sjálfan sig.
Konunni líður illa með sjálfan sig. mbl.is/Thinkstockphotos

E. Jean ráðleggur henni ekki því sem flestir mundu ráðleggja konu í þessari aðstöðu. Eins og það að hætta á samfélagsmiðlum, ekki fylgjast með henni á Facbook og Instagram og eyða öllum samfélagsmiðla forritum úr úr símanum.

Jean svarar því að hún haldi ekki að manneskja sem sé enn með símann á sér geti fylgt þessum reglum. Sérstaklega ekki hávaxin, klár málari með ávalar línur sem er svo hrædd um að vera misheppnuð að hún lætur sér líða eins og hún sé misheppnuð.

Við skulum ekki ljúga að okkur sjálfum. Ef þú prófar ofantaldar aðferðir sem hljóma vel en eru frekar erfiðar fyrir vinnandi fólk með heila þá segja þær ekkert um það að það sé ekki leyfilegt að googla. Löngunin að google fröken beinabyggingu verður mjög sterk og þess vegna….

Ættirðu að skrifa niður þrjá hluti um þú elskar við sjálfan þig áður en þú googlar hana. Það þýðir þrír nýir hlutir í hvert skipti áður en þú skoðar hana.

Áður en þú skoðar vini hennar (það er betra skoða myndir frá vinum hennar til þess að sjá hvað hún er að gera) verður þú að ganga  einn og hálfan kílómeter. 

Bjóddu þig fram til þess að hjálpa krakka sem er strítt á netinu.

Mundu að þú og þín list getur látið annað fólk líða misheppnað. Með því að setja þína hamingju á Facbook og Instagram skaparðu öfund ekki hrifningu. Gangi þér vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál