Kærastinn fær það ekki – hvað er til ráða?

Parið á í erfiðleikum í rúminu. Hvað er til ráða?
Parið á í erfiðleikum í rúminu. Hvað er til ráða? mbl.is/ThinkstockPhotos

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Lausninni fjölskyldumiðstöð, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér er hann spurður út í kynlífserfiðleika pars í sambandi. 

Sæll Valdimar.

Ég er ung kona í smá vandræðum. Ég var tiltölulega nýlega að byrja með manni. Kynlífið okkar byrjaði vel og allt var voðalega spennandi, en eftir að fyrsta spennan dofnaði hætti hann að fá það, eða í raun fékk hann það sjaldan en það truflaði okkur ekkert því að við fengum bæði útrás.

Núna er þetta búið að vinda svo upp á sig að hann fær það ekki (né ég) að við erum bara farin að forðast kynlíf. Prufuðum dót, mismunandi stellingar, sleipiefni og allt en við förum bara að kvíða. Erum búin að tala um þetta en það er svo erfitt að vera „in the moment“ aftur.

Reyndar er hann búinn að vera með talsvert fleiri stelpum heldur en ég og var eitt sinn í neyslu, það spilar talsvert inn í.

Öll önnur samskipti eru í svo góðu og við erum mjög hamingjusöm saman, en erum orðin hálffeimin að segja frá þörfum okkar núna. Hvað er til bragðs að taka?

Fyrirframþakkir, 

K

 

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Lausninni.
Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Lausninni. mbl.is/Kristinn Magnússon

 

Góðan daginn og takk fyrir þessa fyrirspurn.

Til er fyrirbæri sem kallast „seinkað eða hamlað sáðlát“ (e. delayed or inhibited ejaculation) og fellur undir kynlífsröskun. Það á við þegar karlmenn eru mjög lengi að fá fullnægingu eða fá hana jafnvel ekki. Miðað við lýsinguna þína þá gæti það vel átt við um maka þinn.

Ástæður þessarar röskunar geta bæði verið líffræðilegar og/eða andlegar. Veikindi, lyf og neysla vímuefna eru meðal þeirra atriða sem geta haft áhrif á getuna til þess að fá fullnægingu. Eins getur vandinn legið í því að viðkomandi hafi notast við klám eða aðrar leiðir til þess að upplifa örvun og þar af leiðandi dugi ekki „hefðbundið“ kynlíf til þess að kalla fram fullnægingu. Að sama skapi er talað um að þeir sem nota sjálfsfróun reglulega geti átt í erfiðleikum með að upplifa næga ertingu við samfarir.

Andleg vandamál hafa einnig mikil áhrif. Ef einstaklingur á erfitt með að tengjast tilfinningum sínum, er annars hugar eða er að kljást við þunglyndi eða kvíða, þá hefur það áhrif á kynlífið. Við svona aðstæður eins og þú lýsir getur maki þinn verið að upplifa ákveðinn þrýsting á að hann fái fullnægingu sem getur leitt til kvíða og spennu og haft áhrif á getuna til þess að fá fullnægingu. 

Hver sem upprunaleg ástæða vandans er hljómar þetta eins og málið hafi þróast í þá átt að væntingar og ákveðin pressa sé að leiða til sálræns vanda og þar af leiðandi versnar ástandið í stað þess að batna. Ég mæli með því að þið ræðið hreinskilnislega saman um það hvað ykkur finnst og verið heiðarleg með hvaða væntingar þið hafið og hvað það er sem þið óttist. Með því að skilja hvort annað betur hvað þetta varðar gæti það létt á þrýstingnum sem kominn er. Þú talar um erfiðleika við að vera „in the moment“ en það gæti einmitt hjálpað ykkur að æfa ykkur í hugleiðslu. Ég mæli með því að gera núvitundaræfingar þannig að ykkur gangi betur að tengjast tilfinningunum og hvort öðru sem gæti leitt til þess að þið náið að slaka betur á og njóta sambandsins á nýjan hátt. Þannig getið þið leitað nýrra leiða til þess að upplifa nánd og tilfinningar án þess að það þurfi endilega að leiða til kynlífs, en ef það gerist þá er það hið besta mál.

Að lokum vil ég benda á að leita til kynlífsráðgjafa til þess að fá aðstoð við að sjá hvaða ástæður gætu legið að baki þessu vandamáli og fleiri mögulegar leiðir til úrbóta.

Með bestu kveðju, 

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgafi hjá Lausninni fjölskyldumiðstöð. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Valdimari spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál