Það þarf ekki endilega mikla fyrirhöfn til þess að heilla karlmenn, stundum eru það litlu hlutirnir sem virka best. Greinarhöfundur Popsugar fór yfir nokkur atriði sem karlmönnum finnst aðlaðandi við konur.
Ástríða
Karlmönnum finnst kynþokkafullt að sjá konur hafa ástríðu yfir einhverju, hvort sem það er vinnan eða áhugamálin.
Ákveðni
Greinarhöfundur segir karlmenn elska þegar konur taka afdráttalausar ákvarðanir í stað þess að svara alltaf „ég veit það ekki“ eða álíka. Það að kona geti tekið ákvarðanir gefur í skyn að hún sé með gott sjálfsöryggi, eitthvað sem þykir eftirsótt í fari maka.
Gott samkomulag við vini
Karlmönnum finnst frábært þegar kærastan getur skemmt sér með vinum þeirra. Þeir vilja geta tekið konurnar með að hitta vini sína án þess að hafa áhyggjur af hvernig þær eru að skemmta sér.
Snerting
Greinarhöfundurinn segir að karlmenn elski þegar konur snerti þá. Snertingin þarf ekki að leiða til kynlífs heldur getur gefið til kynna að þeim finnist þær öruggar. Snertingin getur verið létt axlanudd eða hreinlega að leggjast á bringu mannsins rétt fyrir svefn.
Þegar konur þurfa á hjálp karlmanna að halda
Karlmenn vilja finna fyrir því að þeir hafi hlutverk og að þeir geti hjálpað konum. Litlir hlutir eins og að biðja karlmann um að lyfta þungum hlut eða opna sultukrukku finnst þeim aðlaðandi. Þeir vita vel að konur geta gert þessa hluti en þeir einfaldlega vilja gera gagn.
Konur í fötum kærastans
Karlmenn elska þegar kærustur þeirra nota fötin þeirra. Það er eins og þeir finni enn frekar fyrir ástinni eða væntumþykjunni þegar þær fara í allt of stór fötin.
Konan byrjar kynlífið
Ef karlmaðurinn byrjar oftast kynlífið elska karlmenn þegar konan tekur fyrsta skrefið.
Karlmenn vilja finna fyrir þakklæti
Rétt eins og konur vilja finna fyrir þakklæti vilja karlmenn það líka. Þó að það sé sjálfsagt að fólk skipti á milli sín verkum í samböndum er gott að heyra það stundum að hinn aðilinn kunni að meta það.
Þegar kona gerir eitthvað sem karlmaðurinn vill
Karlmenn kunna að meta þegar konan lætur sig hafa það að gera eitthvað sem henni finnst ekkert sérstaklega skemmtilegt. Hún gerir það samt vegna þess að hún veit að maka hennar finnst það æðislegt.
Varalitur
Greinarhöfundur tekur fram að hann gæti verið einn um þennan lið, hann viti það ekki, en hann elskar þegar konur eru með varalit. Fyrir honum er varaliturinn merki um sígilda fegurð auk þess að djarft val á varalit sýni sjálföryggi.
Gott samkomulag við tengdafjölskylduna
Þó svo að konum líki ekki endilega við tengdafjölskyldu sína finnst karlmönnum það gott ef þær reyna að minnsta kosti að láta sér líka vel við hana. Að sjá maka sinn hjálpa tengdamömmu sinni við að búa til salat getur glatt karlmanninn verulega.