Leyndarmálið á bak við fáránlega gott kynlíf

Hjónakornin, sem hafa verið gift í sjö ár, lifa prýðilegu …
Hjónakornin, sem hafa verið gift í sjö ár, lifa prýðilegu kynlífi. AFP

Leikkonan Jenna Dewan Tatum, sem gift er leikaranum Channing Tatum, greindi frá því á dögunum hvert leyndarmálið bak við gott kynlíf þeirra hjóna er.

„Mér finnst að allar konur ættu að halda hlutunum spennandi fyrir sig sjálfar. Fólk spyr alltaf, hvað gerir þú til að halda kynlífinu spennandi fyrir manninn þinn. Ég þoli þá spurningu ekki. Hvers vegna ætti það að vera fyrir eiginmanninn. Ég held hlutunum spennandi fyrir sjálfa mig. Undirfötin sem ég kaupi eru ekki endilega fyrir hann. Þau eru fyrir okkur og mig sjálfa,“ sagði leikkonan í samtali við Redbook.

„Ef þér finnst þú vera kynþokkafull er það gott fyrir þig. Með öðrum orðum, gerðu það sem gerir þig hamingjusama. Þægindi og sjálfstraust er lykillinn.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dewan Tatum opnar sig um samlífi þeirra hjóna, enda er hún sérdeilis ánægð með eiginmanninn.

Frétt mbl.is: Hæstánægð með kynlífið

Konur kaupa gjarnan undirföt fyrir sig sjálfar, en ekki til …
Konur kaupa gjarnan undirföt fyrir sig sjálfar, en ekki til að ganga í augun á einhverri karllufsu. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál