Svona fara þær að því að fá það

Ljósmynd / Getty Images

Vefurinn Women‘s Health tók saman frásagnir nokkurra kvenna sem voru beðnar að lýsa því hvernig þær fengu fyrst fullnægingu með samförum. Sögurnar eru afar ólíkar, enda virka sömu hlutirnir ekki fyrir alla.

„Ég gat ekki fengið fullnægingu með hverjum sem er, en það tók alvarlegt samband og mikið neistaflug þar til ég gat slappað nægilega af til að fá það,“ segir Katie K.

„Það sem virkaði loksins fyrir mig var að stunda hæglátt og rólegt kynlíf. Eins og þegar ég horfi á hann og sé hversu ánægður hann er með mig. Það kveikir verulega í mér. Ég get líka fengið fullnægingu í trúboðastellingunni, þegar hann þrýstir sér hægt inn í mig og horfir í augun á mér á meðan og snertir mig á sama tíma.“

Maria greindi hins vegar frá því að í hennar tilfelli virkaði best að liggja á maganum og lyfta mjöðmunum.

„Það tók mig langan tíma, og nokkuð marga bólfélaga, til að átta mig á því að ég get fengið fullnægingu með því að liggja á maganum og lyfta mjöðmunum (annaðhvort með eða án púða). Ef gaurinn er í minna lagi notast ég við stóran púða svo að mjaðmirnar á mér séu hærra og hann geti þrýst sér inn frá hærri vinkli.“

Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál