Heldur fram hjá með tengdamóður sinni

Kynlífið með tengdamóðurinni er það besta sem maðurinn hefur upplifað.
Kynlífið með tengdamóðurinni er það besta sem maðurinn hefur upplifað. mbl.is/Thinkstockphotos

Maður leitar ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun, en hann á í leynilegu ástarsambandi við tengdamóður sína. 

Hún er næstum því tvisvar sinnum eldri en ég og við stundum frábært kynlíf. Ég gifti mig fyrir þremur árum. Ég er 26 ára og konan mín sem er gullfalleg ítölsk stúlka er 25 ára.

Kynlífið með tengdamóður minni er það besta sem ég hef nokkurn tímann upplifað. Þegar ég hitti hana fyrst trúði ég ekki hversu gömul hún var. Hún er 44 ára. Konan mín sagði mér þá með stolti að allir kærastar sínir hefðu verið hrifnir af henni. Það var skrítinn hlutur að segja. Það er það skrítna við að giftast einhverjum úr annarri menningu, það er svo mikið öðruvísi og skrítið að ég vissi ekki hverju ég ætti að trúa.

Mamma hennar á veitingastað. Hann er lítill og fínn en tengdamóðir mín tók yfir hann þegar pabbi konunnar minnar dó. Konan mín vinnur fyrir hana á veitingastaðnum aðra hverja helgi og þá er mamma hennar laus til að hitta mig.

Í fyrsta skipti sem það gerðist kom hún heim til okkar þar sem ég var einn heima með tveggja ára syni okkar. Við stunduðum kynlíf í sófanum á meðan sonur minn svaf á efri hæðinni. Þetta gerist reglulega. Ég hef aldrei stundað svona kynlíf áður og ég veit ég mun ekki gera það aftur. Ég veit að þessu þarf að linna en ég er ekki nógu viljasterkur.

Svo virðist sem ráðgjafanum finnist ekki mikið til mannsins koma og spyr hvort að hann sé að biðja um ráð eða gorta sig af því sem hann hefur verið að gera upp á síðkastið.

Þú veist hvað þú þarft að gera. Þú verður að segja tengdamóður þinni að þetta sé allt búið að vera frábært en þetta verði að stoppa annars munu sonur þinn og kona, fólkið sem þú elskar mest, verða fyrir miklum sársauka.

Náðu stjórn á lífi þínu og ekki láta lostann ná tökum á þér. Kannski þú sért að plata sjálfan þig um að konunni þinni sé sama. Ég skal veðja að henni er það ekki. Hvernig er kynlíf ykkar tveggja? Sýndu henni hvað þú vilt en einbeittu þér líka að henni. Hættu að láta truflast og byrjaðu að gefa hjónabandi þínu athygli og þá ást sem það á skilið.

Ráðgjafinn sagði honum að ná tökum á lífi sínu.
Ráðgjafinn sagði honum að ná tökum á lífi sínu. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál